Sport

Slakt að keppandi þurfi að kæra er brautarverðir sjá brotið

Ingvar Hjartarson.
Ingvar Hjartarson. mynd/fjolnir.is
Ingvar Hjartarson, sem varð að sætta sig við silfurverðlaun í umdeildu Víðavangshlaupi ÍR, er ekki par sáttur við þá niðurstöðu að Arnar Pétursson fái að halda gullverðlaunum sínum.

Sjá einnig: Stytti sér leið á lokasprettinum en úrslitin munu standa

Á myndbandi af æsispennandi lokaspretti Arnars og Ingvars sést hvar Arnar styttir sér leið í lokabeygjunni og kemur svo rétt á undan Ingvari í mark.

ÍR-ingar funduðu með frjálsíþróttasambandi Íslands vegna málsins og niðurstaðan var sú að Arnar hafi ekki rofið neinar merkingar og svo var kærufresturinn runninn út.

Sjá einnig: Arnar rauf engar merkingar og kærufrestur runninn út

Ingvar unir þessari niðurstöðu illa og sendi í morgun tölvupóst á hlaupstjóra Víðavagnshlaupsins þar sem hann óskar svara við nokkrum spurningum.

Tölvupóstur Ingvars:

Mig langaði að spyrjast fyrir um nokkur atriði varðandi hlaupið og lokasprettinn.

1. Þú segir að fengið hafi verið álit hjá FRÍ við úrskurð málsins, mig langar gjarnan að vita hvaða nefnd eða einstaklingar það voru?

2. Hvernig geta þeir dæmt í málinu án þess að vera með lykil gögn eins og myndbandið sem sýna atvikið?

3. Er það ekki hlutverk brautarvarða að tilkynna ef hlaupari brýtur á reglum hlaupsins?

4. Ég velti því fyrir mér hvort það sé ekki hægt að kæra þetta mat nefndarinnar þar sem gögn lágu ekki fyrir þegar úrskurður er dæmdur?

Ég sé ekki almenninlega hvað gerðist fyrr en í gær þegar að ég sé myndbandið á netinu. Mér þykir afskaplega slakt ef að keppandi þurfi að kæra þegar að brautarverðir og stjórnarmeðlimur FRÍ sjá þetta og geta horft framhjá þessu þegar þeir sjá þetta miklu betur en ég.

Auk þess vissi ég ekki um þennan kærufrest því ég heyrði eftir hlaupið að það væri 2-3 daga kærufrestur. Það er t.d. ekki hlutverk keppenda að kæra þegar langstökkvari stígur yfir línu í stökki heldur eru starfsmenn sem dæma þá um stökkið.

B.kv.

Ingvar Hjartarson

Fjölni


Tengdar fréttir

Arnar rauf engar merkingar og kærufrestur runninn út

Mótshaldarar Víðavangshlaups ÍR vilja koma á framfæri að framkvæmd hlaupsins og merkingar brautar hafi verið í samræmi við það sem tíðkast hefur hérlendis með hlaup sem þetta.




Fleiri fréttir

Sjá meira


×