Viðskipti innlent

Slakar á með góðum norrænum krimma

Sæunn Gísladóttir skrifar
Berta Daníelsdóttir segist finna fyrir mikilli þörf fyrir að losa um orkuna með hreyfingu.
Berta Daníelsdóttir segist finna fyrir mikilli þörf fyrir að losa um orkuna með hreyfingu. Vísir/GVA
Berta Daníelsdóttir mun taka við starfi framkvæmdastjóra Íslenska sjávarklasans þann 15. nóvember næstkomandi af Þór Sigfússyni, stofnanda og eiganda. Þór mun starfa áfram að nýsköpunarverkefnum sem klasinn hefur sett á laggirnar ásamt því að vera áfram stjórnarformaður.

Íslenski sjávarklasinn er drifkraftur nýrra hugmynda og stuðlar að öflugu samstarfi fyrirtækja og frumkvöðla í haftengdri starfsemi. Klasinn starfrækir meðal annars Hús sjávarklasans ehf. sem er samfélag tæplega 70 fyrirtækja og frumkvöðla.

Berta hefur gegnt ýmsum ábyrgðar­störfum fyrir Marel síðastliðin 18 ár og nú síðast sem rekstrarstjóri Marel í Seattle í Bandaríkjunum.

„Ég er afskaplega spennt fyrir þessum breytingum. Ég hef frá stofnun Sjávarklasans fyrir fimm árum fylgst vel með þróuninni. Marel var einn af fyrstu samstarfsaðilum í húsinu og í gegnum þáverandi starf mitt fylgdist ég náið með fyrstu skrefunum,“ segir Berta.

„Þetta er réttur tími til að breyta til og mikil áskorun. Framtíðin er björt hjá Sjávarklasanum. Virðiskeðja sjávarútvegsins er svo miklu stærri en bara veiðar og vinnsla. Það er magnað hvað nýsköpunin hefur náð miklu flugi í geiranum á síðustu árum. Það er mikill fókus á nýsköpun og sjálfbærni, og bæði Marel og Íslenski sjávarklasinn hafa það að markmiði að styðja við sjálfbærni í matvælavinnslu,“ segir Berta.

Berta er með meistaragráðu í stjórnun alþjóðlegra fyrirtækja frá Háskólanum á Akureyri. Hún er ein af stofnendum félagsins Konur í sjávarútvegi. Hún flutti í ágúst heim eftir að hafa búið í átján mánuði í Seattle og þar áður sex mánuði í Singapúr á vegum Marel.

„Það er frábært að koma heim. Þó að það sé ótrúlega spennandi að vera erlendis, upplifa nýtt menningar­líf og aðstæður og kynnast lífinu á annan hátt, þá togar fjölskyldan alltaf,“ segir Berta. Hún á þrjú uppkomin börn, og þrjár ömmustelpur sem eiga hug hennar allan.

Þegar hún er ekki að sinna ömmu­stelpunum stundar Berta mikla hreyfingu. „Ég bý yfir ótrúlegri orku og verð að hreyfa mig ef ég næ henni ekki úr kroppnum á daginn, annaðhvort snemma um morguninn eða seinna á kvöldin, til að losa mig við hana,“ segir Berta.

Berta stundar líkamsrækt og göngur með hundinum. „Það er stundum spurning hver dregur hvern út,“ segir hún glettin. „Ég geng aðallega í kringum Hafnarfjörð þar sem ég get tekið hundinn með, meðal annars í Heiðmörk. Ég bý á Völlunum í Hafnarfirði og það er opin náttúra í bakgarðinum hjá mér. Náttúran er margbreytileg og maður er alltaf með eitthvert nýtt listaverk fyrir augunum,“ segir Berta.

Hún er einnig mikill lestrarhestur. „Ég les aðallega skandinavíska krimma, ég slaka mjög mikið á við að lesa þá og detta inn í góða Nesbo-fléttu. Eftir langa daga og mikið áreiti þá er rosalega gott að opna góða bók,“ segir Berta. „Skandinavísku höfundarnir og þeir íslensku eru  magnaðir því bækurnar eru svo raunverulegar.“


Tengdar fréttir

Fyrirtækin hafa vaxið um 15-20 prósent

Sjávarklasinn er fimm ára í ár. Starfsemin hefur vakið mikla athygli, einkum í Bandaríkjunum. Stofnandinn vill að Sílíkondalur sjávarútvegarins verði á Íslandi. Hann sætti rannsókn sérstaks saksóknara þegar Klasinn var stofnaður og se






Fleiri fréttir

Sjá meira


×