Innlent

Slæm loftgæði víða á Suðvesturlandi

Samúel Karl Ólason skrifar
Mynd/Vedur.is
Loftgæði eru nú slæm víða Suðvesturlandi vegna gasmengunar frá eldsumbrotunum í Holuhrauni. Samkvæmt vef Umhverfisstofnunar loftgaedi.is eru loftgæði „slæm fyrir viðkvæma“ allt frá Grundartanga að Hveragerði.

Verst eru loftgæðin Í Grafarvogi í Reykjavík.

Í tilkynningu frá Almannavörnum segir að samkvæmt spá Veðurstofu Íslands sé búist við froststillu á gosstöðvunum í Holuhrauni. Við þær aðstæður má búast háum styrk mengunar og þá einkum suðvestan til fyrripart dags.

Þegar líður á daginn má þó búast við mengun á svæðunum norðan og austan við eldstöðina.

Almenningur er hvattur til þess að kynna sér leiðbeiningar yfirvalda sem finna má á vef Umhverfisstofnunar www.loftgæði.is og á vef almannavarna www.avd.is.




Fleiri fréttir

Sjá meira


×