Innlent

Skýrsla neyðarstjórnar: Þjálfun bílstjóra verði aukin til muna

Stefán Árni Pálsson skrifar
Neyðarstjórnin leggur til að áfram verði tímabundið starfrækt sérstök stjórn yfir ferðaþjónustu fatlaðs fólks.
Neyðarstjórnin leggur til að áfram verði tímabundið starfrækt sérstök stjórn yfir ferðaþjónustu fatlaðs fólks. VÍSIR/VILHELM/ANTON
Neyðarstjórn sem sett var yfir ferðaþjónustu fatlaðs fólks á höfuðborgarsvæðinu hefur skilað inn skýrslu en stjórnin var sett á laggirnar þann 5. febrúar.

Í skýrslunni kemur fram að tillögur stjórnarinnar sem snúa að framkvæmd þjónustunnar feli í sér að ferðir verði í mun meira mæli skipulagðar með föstum hætti sem og að hún verði svæðisbundnari en áður.

Jafnvel er lagt til að sveigjanleiki hennar verði aukinn þannig að unnt verði í meira mæli en áður að koma til móts við sérstakar þarfir einstakra notenda, sérstakir þjónustufulltrúar verði í þjónustuveri fyrir ferðaþjónustuna frá og sérhæfing þar aukin.

Sjá einnig: Neyðarstjórn sett yfir þjónustu Strætó við fatlaða

Stjórnin leggur einnig til að þjálfun bílstjóra verði aukin til muna, hlutlaus úttekt verði gerð á því tölvukerfi og símkerfi sem notað er í þjónustunni og þau borin saman við önnur möguleg kerfi, reglur þjónustu lýsingu samkomulag sveitarfélaganna og samningar verði endurskoðaðir.

Einnig leggur neyðarstjórnin til að áfram verði tímabundið starfrækt sérstök stjórn yfir ferðaþjónustu fatlaðs fólks hjá Strætó bs. og hún ráði sérstakan stjórnanda yfir þjónustuna sem m.a. muni bera ábyrgð á innleiðingu þeirra breytinga sem lagar séu til í skýrslunni í samvinnu við aðra stjórnendur. Stjórnin verði áfram skipuð fulltrúum sveitarfélaganna og notenda þjónustunnar í gegnum hagsmunasamtök fatlaðs fólks.

Neyðarstjórn sem sett var yfir ferðaþjónustu fatlaðs fólks á höfuðborgarsvæðinu hefur skilað inn skýrslu.vísir
Á sameiginlegum fundi eigenda og stjórnar Strætó bs. sem haldinn var á skrifstofu SSH föstudaginn 6. mars 2015 lagði Stefán Eiríksson formaður sérstakrar stjórnar ferðaþjónustu fatlaðs fólks sem skipuð var 5. febrúar síðastliðinn fram lokaskýrslu stjórnarinnar, en starfstíma hennar lauk 4. mars 2015. Þetta kemur fram í tilkynningu frá Samtökum sveitarfélaga á höfuðborgarsvæðinu.

Fundurinn samþykkti eftirfarandi:

„Eigendafundurinn þakkar sérstakri stjórn ferðaþjónustu fatlaðs fólks sem skipuð var á eigendafundi 4. febrúar sl. fyrir mikið og vel unnið starf við erfiðar og krefjandi aðstæður. Sömuleiðis er stjórninni þakkað fyrir ítarlega og greinargóða skýrslu sem dregur upp skýra mynd af máli og þeim viðfangsefnum sem takast þarf á við til að koma starfsemi ferðaþjónustu fatlaðs fólks í það horf sem að var stefnt.”

Sjá einnig: Ung stúlka skilaði sér ekki heim með ferðaþjónustu fatlaðra í dag

Fundurinn samþykkti ennfremur neðangreint varðandi framhald máls:

Sameiginlegur fundur eigenda og stjórnar Strætó bs er sammála um mikilvægi þess að sátt og traust ríki um ferðaþjónustu fatlaðs fólks. Fundurinn samþykkir að þegar verði hafist handa við að innleiða þær tillögur sem fram koma í skýrslu sérstakrar stjórnar ferðaþjónustu fatlaðs fólks frá 5. mars 2015.

Fundurinn er ennfremur sammála þeirri sýn sem fram kemur í lið 4.3.1 í skýrslunni að mikilvægt sé að treysta og tryggja aðkomu hagsmunaaðila að framkvæmd og þróun þjónustunnar og ákvarðanatöku um skipulagningu hennar.

Eigendafundurinn samþykkir að framkvæmdaráði með aðkomu hagsmunasamtakana verði falið að vinna að innleiðingu breytinganna innan vébanda Strætó bs.

Framkvæmdaráðið skipa: Þorkell Sigurlaugsson formaður Bryndís Snæbjörnsdóttir ftr. Þroskahjálpar Tryggvi Friðjónsson ftr. Sjálfsbjargar Fulltrúi velferðasviðs Reykjavíkurborgar Fulltrúi velferðarsviðs Hafnafjarðarbæjar.

Meginverkefni framkvæmdaráðsins verða: 

• Að tryggja örugga og eðlilega þjónustu og framkvæmd ferðaþjónustu fatlaðs fólks með markvissri innleiðingu á þeim tillögum sem settar eru fram í skýrslu fyrri stjórnar frá 5. mars sl. 

Skipunartími framkvæmdaráðsins er til 31. ágúst 2015 Framkvæmdastjóri Strætó bs. starfar með framkvæmdaráðinu og verður tengiliður ráðsins við stjórn Strætó bs. 

Á næstu mánuðum verður unnið að því á vettvangi SSH og í samráði við framkvæmdaráðið og stjórn Strætó bs að huga að framtíðar stjórnsýslulegu fyrirkomulagi ferðaþjónustu fyrir fatlað fólk.

Stefnt verður að því að niðurstöður þeirra vinnu liggi fyrir tímanlega vegna mögulegra áhrifa þeirra tillaga á fjárhagsáætlanir sveitarfélaganna og Strætó bs. fyrir árið 2016.


Tengdar fréttir

Saka bílstjórann um vítavert gáleysi

Landssamtökin Þroskahjálp og Öryrkjabandalag Íslands harma þann alvarlega atburð sem átti sér stað í gær hjá Akstursþjónustu Strætó b.s.

Strætó krossar fingur vegna ferðaþjónustu

Jóhannes Rúnarsson, framkvæmdastjóri Strætó, bað Þórð Guðlaugsson og fjölskyldu hans afsökunar eftir að honum var ekið á rangan stað í gær og hann skilinn eftir. Þórður á bágt með að gera sig skiljanlegan en tókst að hringja í móður sína.

Fóru aðra leið með Strætó en velferðarráð hefði kosið

Óánægja með þunglamalega þjónustu og kostnaður varð til þess að velferðarráð Reykjavíkur vildi bjóða út akstur Ferðaþjónustu fatlaðra í borginni. Samtök sveitarfélaga á höfuðborgarsvæðinu sömdu svo við Strætó.




Fleiri fréttir

Sjá meira


×