Matur

Skyramisú að hætti Evu Laufeyjar

Eva Laufey Hermannsdóttir skrifar
visir.is/evalaufey
Súkkulaði og kaffidraumur

Skyramísú

Flest þekkjum við ítalska eftirréttinn ‚Tíramísú‘. Ég notaði skyr í stað þess að nota mascarpone og útkoman var virkilega góð.

  • 2 egg
  • 50 g sykur
  • 500 g vanilluskyr
  • 250 ml rjómi
  • 1 tsk. Vanilla extract eða vanillusykur
  • 4 dl þeyttur rjómi
  • 200 g kökufingur (Lady fingers kex)
  • 6-7 dl sterkt uppáhellt kaffi
  • Gott kakó, magn eftir smekk
  • Súkkulaði, smátt saxað

Aðferð

Stífþeytið egg og sykur saman þar til þykk froða myndast.

Blandið skyrinu við eggjablönduna og hrærið vel.

Bætið vanillunni og rjómanum (þeyttur) varlega saman við með sleif. Leggið blönduna til hliðar í stutta stund á meðan þið hugið að kökunum.

Hellið upp á sterkt kaffi og setjið kaffið í skál.

Veltið kökufingrunum upp úr kaffinu og skiptið þeim niður í desert skálar eða fallega skál.

Setjið helminginn af skyrblöndunni ofan á kökufingurna, stráið svolitlu kakói yfir og smátt söxuðu súkkulaði. Endurtakið leikinn þar til hráefnið er búið.

Í lokin er stráð vel af kakói yfir réttinn.

Það þarf að kæla þennan rétt í lágmark 4 klukkustundir áður en þið berið hann fram, best finnst mér að geyma hann í kæli yfir nótt.

Missið ekki af Matargleði Evu öll fimmtudagskvöld á Stöð 2.  






Fleiri fréttir

Sjá meira


×