Um vörslusviptingar er ekki hægt að alhæfa. Einstaklingur gerir samning um að kaupa bifreið, fær bílinn í hendur en stendur ekki í skilum. Hann er sviptur umráðum yfir bílnum. Annar einstaklingur stendur í skilum lengi vel en springur á limminu í kjölfar efnahagshrunsins vegna verðbólguskots og kjaraskerðingar. Til er í dæminu að einstaklingur hafi talið sig vera búinn að greiða eignina upp en kaupleigufyrirtækið telji svo ekki vera. En þrátt fyrir ágreining voru þess mörg dæmi að handhafi hinnar umdeildu eignar hafi verið sviptur henni með valdi án þess að leitað hefði verið eftir úrskurði og heimildum sem lög þó kváðu á um.
Aftur og ítrekað komu inn á mitt borð kvartanir vegna slíkra vörslusviptinga eftir að ég tók við embætti ráðherra dómsmála og mannréttinda.
Groddalegar aðfarir Kvartanirnar komu bæði frá einstaklingum og samtökum. Ég brást ítrekað við í fjölmiðlum þar sem ég reisti þá kröfu á hendur kaupleigufyrirtækjum að þau færu að lögum í þessum efnum og á heimasíðu innanríkisráðuneytisins komu þessi tilmæli skýrt fram. Fram kom að telji einhver sig eiga skýlausan rétt á að fá umráð eignar sem er í vörslu annars, þarf hinn fyrrnefndi almennt að leita til opinbers aðila til að fá þessa heimild sína staðfesta. Slíkt væri unnt að gera með skjótum hætti á grundvelli 78. gr. laga um aðför. Samkvæmt henni væri að sama skapi aðila sem teldi sér með ólögmætum hætti aftrað að neyta réttinda sem honum bæri og hann gæti fært sönnur á rétt sinn, heimilt að beina til héraðsdómara beiðni um að hluturinn yrði færður honum í hendur. Dómari tæki þá afstöðu til þess hvort réttur gerðarbeiðanda væri svo ótvíræður að heimila mætti honum umráð hlutarins.
Samkvæmt 3. mgr. 83. gr. aðfararlaga skal að jafnaði hafna aðfararbeiðni ef varhugavert þykir að láta gerðina ná fram að ganga á grundvelli sönnunargagna. Það þýðir að leiki vafi á réttmæti kröfu gerðarbeiðanda skal hafna því að aðför fari fram. Sé slíkri aðfararbeiðni hafnað er gerðarbeiðanda óheimilt að taka eign í sína vörslu þar til leyst hefur verið úr ágreiningi aðila.
Þetta er afdráttarlaust enda urðu þessar ábendingar til þess að verulega dró úr vörslusviptingum sem stundum fóru þó fram með vægast sagt groddalegum hætti. Þótt ástandið lagaðist bárust þó áfram kvartanir.
Ný löggjöf Í framhaldinu óskaði ég eftir því við réttarfarsnefnd ráðuneytisins að nefndin útbyggi lagafrumvarp þar sem tekið væri á þessu vandamáli og þeir sem stunduðu slíkar aðferðir yrðu knúnir til að fara að reglum aðfararlaga vildu þeir ná til sín eignum sem þeir teldu sig eiga. Þótt lögin væru skýr, eins og hér hefur komið fram, væri þó greinilegt að skerpa þyrfti á þeim þannig að engin tvímæli væru. Frumvarp þessa efnis leit nú dagsins ljós og var það útbúið sem breyting á innheimtulögum.
Efnahags- og viðskiptanefnd Alþingis hafði þessi mál einnig til skoðunar í góðri samvinnu við innanríkisráðuneytið. Úr varð að frumvarpið var flutt á vegum nefndarinnar og varð það að lögum nú í þinglok. Ég tel að hér sé um mikilvæga réttarbót að ræða. Hér eftir er ljóst að sá sem taka vill eign sína úr vörslu umráðamanns verður að fá samþykki hans til þess. Fáist samþykki ekki verður að fara að þeim reglum sem kveðið er á um í lögum um aðför og leita atbeina dómstóla og svo sýslumanns til aðgerðanna. Jafnframt er ljóst að þeir sem stunda vörslusviptingar þurfa nú leyfi stjórnvalda til þess.
Athugið. Allar athugasemdir eru á ábyrgð þeirra er þær rita. Vísir hvetur lesendur til að halda sig við málefnalega umræðu. Einnig áskilur Vísir sér rétt til að fjarlægja ærumeiðandi eða ósæmilegar athugasemdir.
Næringarspítalar eru skrýtnir staðir. Lífshættulega vannærð börn liggja um allt og halda ekki höfði. Sum börnin enduðu hér eftir að hafa drukkið óhreint vatn heima sem olli endurteknum magakveisum og ...
Meira
Eitt af þeim samfélagslegu markmiðum sem ríkisstjórn Vinstri grænna og Samfylkingar setti í sóknaráætlun til ársins 2020 er að hlutfall Íslendinga á aldrinum 20-66 ára sem ekki hafa lokið formlegu nám...
Meira
1970 var merkilegt ár í íslenskri virkjana- og náttúruverndarsögu, ár Laxárdeilunnar og greinar Nóbelskáldsins, "Hernaðurinn gegn landinu“, sem er enn í fullu gildi. Stjórn Laxárvirkjunar notaði...
Meira
Ísland hefur nú gert fríverslunarsamning við Kína og er það af hinu góða. Hins vegar breytir það litlu varðandi þá staðreynd að Evrópumarkaðurinn er og verður langmikilvægasti markaður fyrir íslenskar...
Meira
Vegagerðin og Garðabær hafa skilað innanríkisráðherra greinargerð vegna nýs Álftanesvegar um Gálgahraun. Í greinargerðinni er því hafnað að hægt sé að koma til móts við óskir Hraunavina og annarra nát...
Meira
Ansi víða þar sem ég hef verið og komið á undanförnum árum og mánuðum á Íslandi hefur mér fundist beinlínis óþægilegt að finna hvað fólk er oft hikandi við að segja skoðanir sínar.
Meira
Sem barn lærði ég muninn á að fá lánað og að fá gefins. Þegar ég lánaði bestu vinkonu minni hjólaskautana mína þá vildi ég fá þá alveg eins til baka. Og ekki bara annað stykkið heldur bæði því ég var ...
Meira
Árið 2009 lét Jóhanna Sigurðardóttir undan þrábeiðni forystu Samfylkingarinnar og tók við tröllauknustu viðfangsefnum stjórnmála lýðveldistímans. Til hennar var leitað vegna heiðarleika hennar, heilin...
Meira
Í dag, 23. maí, rennur út frestur til að gera athugasemdir við nýtt deiliskipulag um Austurvöll, Fógetagarð og Ingólfstorg. Ég hvet þig, lesandi góður, til að senda inn athugasemdir við téð skipulag a...
Meira
Orð formanns Framsóknarflokksins um að staða og horfur í ríkisfjármálum væru verri en áður var talið féllu í grýttan jarðveg. Fráfarandi ráðherrar og stuðningsmenn fóru beint í skotgrafirnar og töluðu...
Meira
Eftirfarandi viðbrögð hefur skemmtikraftur líklega aldrei þurft að heyra eftir að viðskiptavinur spyr hann hvað hann rukki fyrir vinnu sína: "Hva, þú getur nú gert þetta ódýrt fyrir okkur, við erum að...
Meira
Upp úr árunum frá 1970 hófst skeið óðaverðbólgu á Íslandi og frá þeim tíma hefur verðbólga verið viðloðandi íslenskt efnahagslíf eins og ólæknandi sjúkdómur. Verðbólgan hefur skotið rótum í þjóðfélagi...
Meira
Margumbeðnar og löngu tímabærar endurbætur á Hverfisgötu hefjast innan tveggja mánaða. Stór hluti götunnar verður lagfærður í tveimur áföngum frá júlí og fram í október: Fyrst frá Vitastíg vestur að F...
Meira
Á vef landlæknisembættisins er að finna marga nafnalista yfir þá sem fengið hafa starfsleyfi í heilbrigðisþjónustu m.a. ljósmæður, lækna, sjúkraþjálfara, sálfræðinga og aðrar stéttir sem starfa í heil...
Meira
Stuttu fyrir Hrunið skrifaði ég pistil í bók og velti fyrir mér hvort það væri tilviljun að skopmyndirnar af Múhameð spámanni hefðu birst í einu stærsta dagblaðinu í Danmörku á sama tíma og Dansk Folk...
Meira
Í vikunni bárust a.m.k tvær jákvæðar fréttir sem tengjast áherslum Íslands í velferðarmálum. Báðar fréttirnar sýna að viðbrögð okkar við hruninu hafi verið félagslega meðvituð og árangursrík á sviði v...
Meira
Framganga SÍ og velferðarráðuneytisins vegna nýrrar lagasetningar og reglugerðar um greiðsluþátttöku SÍ á lyfjum hefur verið ótrúleg, svo ekki sé meira sagt.
Meira
Um þessar mundir er í kynningu tillaga að nýju deiliskipulagi fyrir Landsímareit í Kvosinni í Reykjavík. Samkvæmt henni má reisa hús í Kirkjustræti, á bílastæðinu andspænis hinum gömlu húsum Alþingis
Meira
Það er komið að lokapunktinum hjá nemendum mínum á þessari önn: lokapróf. Ég stend og horfi yfir hópinn á þessa einstaklinga sem ég hef fengið að kynnast eina önn....
Meira
Í síðustu viku átti sá fréttnæmi atburður sér stað að einn frægasti og merkasti stjarneðlisfræðingur nútímans, Stephen Hawking, tók þá pólitísku ákvörðun að sniðganga ráðstefnuna ”The Israeli Pr...
Meira
Undanfarið hefur verið nokkur umfjöllun um náttúruvernd á Reykjanesskaga og er það mjög ánægjulegt. Grindavíkurbær er landmesta sveitarfélagið á Reykjanesi og eru margar af perlum svæðisins innan skip...
Meira