Viðskipti innlent

Skylda ríkið til að bjóða út farmiðakaup

Samúel Karl Ólason skrifar
Vísir/Anton/Vilhelm
Kærunefnd útboðsmála hefur lagt fyrir fjármálaráðuneytið að bjóða út innkaup á flugfarmiðum til og frá Íslandi. Það er gert í framhaldi af kæru Wow air ehf. Nefndin fellst á sjónarmið Wow og Félags atvinnurekenda að skylda ríkisins til að bjóða út flugmiðakaupin sé fortakslaus þar sem farmiðaviðskipti ríkisins séu yfir þeim viðmiðunarfjárhæðum sem lög um opinber útboð tilgreina.

Þetta kemur fram í tilkynningu frá Wow air og Félagi atvinnurekenda.

Kærunefndin kemst einnig að þeirri niðurstöðu að fjármálaráðuneytið og aðrar ríkisstofnanir hafi ekki keypt flugfarmiða í samræmi við þau innkaupaferli sem eru tilgreind í lögum um opinber innkaup. Í tilkynningunni segir að ríkið hafi haldið því fram að innkaup einstakra stofnana séu undir viðmiðunarfjárhæðum, en nefndin telur að horfa verði á miðakaupin sem eina heild.

Þar að auki séu þau á ábyrgð fjármálaráðuneytisins.

Sjá einnig: WOW skoðar stöðu sína gagnvart ríkinu

„Samkvæmt þessu er það niðurstaða nefndarinnar að varnaraðili [fjármálaráðuneytið] hafi gerst brotlegur við áðurlýstar reglur um opinber innkaup með því að koma á fót og viðhalda ástandi þar sem umrædd þjónusta var ekki keypt inn í samræmi við lögákveðna innkaupaferla,“ segir kærunefnd.

Þar er átt við viðskipti ríkisins við Icelandair samkvæmt samningi við fyrirtækið.

Þó taldi nefndin sig ekki hafa heimildir til að banna að veita vildarpunkta eða aðra fjárhagslega umbun til ríkisstarfsmanna í skiptum fyrir kaup á þjónustu.

„Nefndin minnir þó á að við opinber innkaup ber að gæta jafnræðis og gagnsæis, bæði við framsetningu útboðsskilmála og mat á tilboðum,“ segir í úrskurðinum. Hann má sjá hér að neðan.

Fagna Úrskurðinum

Félag atvinnurekenda fagnar úrskurðinum.

„Fjármálaráðuneytið hefur lýst því yfir að farmiðakaupin verði boðin út. Við fögnum því engu að síður að kærunefndin staðfesti fortakslausa skyldu ríkisins til að bjóða út þessi viðskipti og fallist jafnframt á það sjónarmið að fjármálaráðuneytið hafi brotið lögin um opinber innkaup. Ef einhver ætti að ganga á undan með góðu fordæmi í umgengni við þá löggjöf er það fjármálaráðuneytið,“ segir Ólafur Stephensen, formaður FA.

Skúli Mogensen, forstjóri Wow air, tekur í sama streng.

„Félagið mun nú vonandi fá tækifæri til að bjóða í innkaup ríkisins. Afleiðing þess mun án efa verða mikill fjárhagslegur ábati fyrir ríkissjóð og þar með fyrir okkur öll, enda er WOW Air hagkvæmasta og stundvísasta flugfélag á Íslandi,“ segir Skúli.

Páll Rúnar M. Kristjánsson lögmaður á Málflutningsstofu Reykjavíkur, sem fór með málið fyrir hönd WOW Air, segir að úrskurðurinn sé í samræmi við væntingar.

„Þetta var það sem lagt var upp með. Það er ljóst að hið opinbera hefur um langa hríð sniðgengið skyldur sínar sem er miður fyrir umbjóðanda minn sem og skattgreiðendur almennt. Fram á við hefur þetta þá þýðingu að umbjóðandi minn fær vonandi að taka þátt í lögmætu og réttlátu útboði þar sem að aðilar keppa á verðleikum sínum í því að bjóða sem besta þjónustu fyrir sem minnst fé. Þegar horft er aftur er hins vegar ljóst að þetta hefur valdið umbjóðanda mínum miklu tjóni enda hefur hann orðið af miklum viðskiptum en hið ólögmæta ástand hefur leitt til þess að viðskipti ríkisins hafa nær eingöngu verið við Icelandair. Hvort að það tjón verður sótt þarf einfaldlega að skoða nánar.“






Fleiri fréttir

Sjá meira


×