Fréttavefur Sky Sports staðhæfir í dag að Björn Bergmann Sigurðarson sé nálægt því að ganga til liðs við enska B-deildarfélagið Wolves.
Áður hefur verið greint frá því að Björn Bergmann sé líklega á leið til Wolves en nýráðinn stjóri liðsins, Norðmaðurinn Ståle Solbakken, hefur fylgst náið með Birni að undanförnu.
Björn Bergmann leikur með Lilleström í Noregi og hefur skorað ellefu mörk í þrettán leikjum með liðinu á núverandi leiktíð.
Samkvæmt Sky Sports munu forráðamenn Lilleström vera undir það búnir að missa Björn Bergmann í sumar og að viðræður við Wolves séu þegar hafnar. Enn fremur er fullyrt að Wolves vilji ganga sem fyrst frá samningum svo að hann freistist ekki til að fara eitthvert annað.
Athugið. Allar athugasemdir eru á ábyrgð þeirra er þær rita. Vísir hvetur lesendur til að halda sig við málefnalega umræðu. Einnig áskilur Vísir sér rétt til að fjarlægja ærumeiðandi eða ósæmilegar athugasemdir.
Tottenham gerði í nótt markalaust jafntefli við landslið Jamaíku á Bahama-eyjunum. Gylfi Þór Sigurðsson var í byrjunarliði Tottenham og spilaði allan leikinn.
Meira
"Ég er svo ánægður með að hafa skrifað undir nýjan eins árs samning fyrir þetta frábæra félag,“ sagði Rio Ferdinand, varnarmaður Manchester United.
Meira
Það hafa orðið miklar sviptingar á knattspyrnustjóramarkaðnum í ensku úrvalsdeildinni á síðustu dögum og þrír af þeim stjórum sem hafa verið lengst með sín félög leita nú á ný mið en það eru þeir Sir ...
Meira
Hvers skoraði flest sjálfsmörk? Hver skaut oftast framhjá? Hvaða markvörður varði flest skot? Hver braut oftast af sér? Það er kominn tími til að gera upp 21. leiktímabilið í ensku úrvalsdeildinni í k...
Meira
Alls small boltinn 265 sinnum í stönginni eða þverslánni í leikjunum 380 í ensku úrvasdeildinni í vetur. En hverjir ætli hefðu orðið meistarar hefði boltinn farið inn en ekki út?
Meira
Enskir fjölmiðlar fullyrða að stutt sé í að Liverpool gangi frá samningum við varnarmanninn Kolo Toure sem er að verða samningslaus hjá Manchester City.
Meira
Miðjumaðurinn snjalli, Michael Carrick, segir að leikmenn Manchester United standi við bakið á Skotanum David Moyes sem mun taka við liðinu í sumar. Liðið var Englandsmeistari í ár undir stjórn Sir Al...
Meira
Manchester City og Manchester United mættust í stórkoslegum knattspyrnuleik á Etihad í Manchester í vetur. Leikurinn var sá besti á nýafstaðinni leiktíð að mati Sunnudagsmessunnar.
Meira