Innlent

Skutlaði stráknum á leikinn í þyrlu

Kolbeinn Tumi Daðason skrifar
Vísir
Faðir drengs í yngri flokkum Stjörnunnar í Garðabæ í knattspyrnu fór heldur óvenjulega leið við að koma syni sínum í útileik gegn ÍA í vikunni.

Feðgarnir fóru í þyrlu upp á Skaga en um leik í 4. flokki karla var að ræða. Hvort það var þyrluferðinni að þakka eður ei voru gestirnir úr Garðabænum í stuði í leiknum. Þeir unnu öruggan 6-0 sigur.

Að neðan má sjá myndir af þyrlunni við Norðurálsvöllinn á Akranesi.

Vísir
Vísir
Vísir



Fleiri fréttir

Sjá meira


×