Menning

Skúli lávarður lágtíðninnar

Gunnþóra Gunnarsdóttir skrifar
Skúli staddur í safni Sigurjóns Ólafssonar við móttöku styrksins úr Minningarsjóði Kristjáns Eldjárns gítarleikara.
Skúli staddur í safni Sigurjóns Ólafssonar við móttöku styrksins úr Minningarsjóði Kristjáns Eldjárns gítarleikara. Vísir/Hanna
Þetta var góður dagur, hefur Skúli Sverrisson, bassaleikari og tónskáld örugglega hugsað um fimmtudaginn 16. júní, eftir að hafa hlotið milljón króna styrk úr Minningarsjóði Kristjáns Eldjárns, gítarleikara og hlýtt á frumflutning tónverks úr eigin smiðju. 

Styrkveitingin fór fram í Listasafni Sigurjóns Ólafssonar á afmælisdegi Kristjáns sem lést, tæplega þrítugur, árið 2002.

Í rökstuðningi sjóðsstjórnar segir meðal annars: „Skúli Sverrisson er einstakur listamaður. Fagmaður og virtúós á sitt hljóðfæri, tónskáld með persónulega nálgun og auðþekkjanlegan skýran tón, hugsjónamaður, brautryðjandi og velgjörðarmaður annars tónlistarfólks.... Skúli er sannkallaður „lávarður lágtíðninnar“.“

Tónverkið Miranda eftir Skúla er nýtt einleiksverk fyrir píanó. Víkingur Heiðar lék það í Norðurljósasal Hörpu á upphafstónleikum Reykjavík Midummer Music. Skúli samdi verkið eftir miklar pælingar um geiminn.

„Ég hlustaði meðal annars á upptökur frá plánetum sem búið var að umbreyta svo mannseyrað gæti greint þau og hreifst ég þar sérstaklega af hljóðunum frá Miröndu, sem er minnsta tungl Úranusar,“ er haft eftir honum um verkið.








Fleiri fréttir

Sjá meira


×