Fótbolti

Skúli Jón skoraði í Íslendingaslag

Mynd/Getty
Halmstad vann Gefle í Íslendingaslag í sænsku úrvalsdeildinni í dag, en leiknum lauk með 3-2 sigri Halmstad. Skúli Jón Friðgeirsson skoraði annað mark Gefle.

Mikael Bosman kom Halmstad yfir á 50. mínútu og tíu mínútum síðar tvöfaldaði Antonio Rojas forystuna. Simon Lundevall minnkaði muninn fyrir Gefle úr víti undir lok leiks, en Kristoffer Fagercrantz skoraði þriðja mark Halmstad í uppbótartíma.

Gestirnir gáfust ekki upp og Skúli Jón Friðgeirsson minnkaði muninn í uppbótartíma.

Kristinn Steindórsson var í byrjunarliði Halmstad og spilaði allan leikinn, en Guðjón Baldvinsson var í banni. Skúli Jón Friðgeirsson spilaði allan leikinn í miðri vörn Gefle.

Halmstad fór upp í fjórtanda sætið með sigrinum, en Gefle er í því ellefa með tveimur stigum meira.




Fleiri fréttir

Sjá meira


×