Innlent

Skuldir heimila gætu vaxið verulega með afnámi hafta

kolbeinn óttarsson proppé skrifar
Stjórnvöld hafa ekki sinnt því nægilega að undirbúa þjóðina undir hvað tekur við eftir afnám gjaldeyrishafta, að mati hagfræðings við HÍ. Hagfræðingar sammála um að umræðan þurfi að fara fram fyrir opnum tjöldum.
Stjórnvöld hafa ekki sinnt því nægilega að undirbúa þjóðina undir hvað tekur við eftir afnám gjaldeyrishafta, að mati hagfræðings við HÍ. Hagfræðingar sammála um að umræðan þurfi að fara fram fyrir opnum tjöldum. vísir/gva
„Það þarf að undirbúa þjóðina,“ segir Ásgeir Jónsson, dósent í hagfræði við Háskóla Íslands. Mikilvægt sé að stjórnvöld sýni frumkvæði og ræði lífið eftir afnám gjaldeyrishafta.

„Afnám hafta kemur ekki ofan frá, þjóðin verður að vera með,“ segir Ásgeir við Fréttablaðið. Þegar krónan verði frjáls missum við stjórn á henni.

„Þú getur ekki afnumið höft nema sleppa krónunni frjálsri og þá mun hún hækka eða lækka, sem getur orsakað verðbólgu. Það þarf ekki mikið gengisfall til að ýta mörgum íslenskum heimilum út í neikvæða eiginfjárstöðu.“

Ásgeir segir að ef raunverulega eigi að afnema höftin, þurfi umræðan um það að hefjast.

„Meginhluti af lánum heimilanna er verðtryggður og gengislán og verðtryggt lán er nokkurn veginn sama lánið. Það þarf að undirbúa almenning fyrir þetta og undirbúa stofnanakerfið þannig að þetta sé einfaldlega pólitískt mögulegt.“

Að mati Ásgeirs virðist sem ekki sé mikið að gerast í afnámi hafta. Engar tillögur hafi komið fram frá því að Alþjóðagjaldeyrissjóðurinn hvarf úr landi.

„Það eru sex ár frá hruninu. Sú afsökun að við séum að setja höft út af fjármálaáfalli er ekki lengur fyrir hendi,“ segir Ásgeir. „Það er talað um að afnema höftin, en ekkert í okkar gerðum bendir til þess að það sé að fara að gerast.“

Ásgeir var frummælandi á fundi stjórnarandstöðunnar um afnám hafta í gær, ásamt Sigríði Benediktsdóttur, hagfræðingi hjá Seðlabankanum, og Ólafi Darra Ólafssyni, hagfræðingi hjá ASÍ.

Hagfræðingarnir þrír voru sammála um að ytri aðstæður fyrir losun hafta væru hagstæðar um þessar mundir. Hins vegar væri mikilvægt að umræðan færi fram fyrir opnum tjöldum.




Fleiri fréttir

Sjá meira


×