Skoðun

Skrítin bókaþjóð

Snæbjörn Brynjarsson & Kjartan Yngvi Björnsson skrifar
Við viljum byrja þessa grein á að óska þeim til hamingju sem tilnefndir verða til íslensku bókmenntaverðlaunanna í ár.

Það er mikilvægt að höfundar fái viðurkenningu fyrir vinnuna sem liggur að baki framúrskarandi verkum og ekki síður að efla umræðu um bókmenntir.

Sem ungir höfundar getum við varla ímyndað okkur íslenskan bókmenntaheim án slíkra verðlauna. Þó eru ekki nema 25 ár síðan verðlaunin voru fyrst veitt.

Kannski ekki svo skrítið á eyju sem bannaði bjór og fékk núll stig í eurovision, en skrítið samt.

Skrítið að tilkynna ekki vinningshafa á Bessastöðum. Skrítið að birta það ekki á forsíðum blaða eða í sjónvarpsfréttum.

Skrítið að takast ekki á um hverjir eigi verðlaunin virkilega skilið og hvað svona verðlaun merkja.

Skrítið að bókaþjóðin fagni ekki höfundum og verkum þeirra. Sem betur fer er það liðin tíð að framúrskarandi verk séu ekki verðlaunuð. Auðvitað hafa verðlaunin mikil áhrif á annað séríslenskt fyrirbrigði, íslenska jólabókaflóðið.

Mikið hefur verið rætt um nauðsyn þess að efla bókasölu utan jólavertíðarinnar en samt lítið gert þótt einhverjir sprotar sjáist á vorin. Aðallega birtast þá bækur eftir unga og tilraunakennda höfunda, bækur sem álitið er að seljast myndu illa sem gjafavörur hvort sem er.

Skrítið að Ísland er eina landið þar sem bækur eru fyrst og fremst gjafavörur. Það kemur mögulega ekki niður á lestrinum að bókin sé frá ömmu, en það er eitthvað skrítið við að fara aldrei sjálfur og velja sér bók nema það sé til að skipta út annarri. Þeirri sem þú fékkst tvisvar þessi jól.

Þegar kynntar eru tilnefningar til bókmenntaverðlaunanna hefst ákveðin neyslustýring. Tilnefndar bækur taka sölukipp, og svo þegar verðlaunin hafa verið afhent með pompi og prakt taka þær bækur aftur sölukipp á skiptibókamarkað Janúars.

Skrítið að allir bókaviðburðir og bókaflóðið sjálft skyldu ramba niður á sama árstíma. Skrítið að íslensku barnabókaverðlaunin, bókmenntaverðlaun starfsfólks bókaverslana og íslensku bókmenntaverðlaunin og verðlaun Jónasar Hallgrímssonar séu öll veitt innan sömu þriggja mánaða, einmitt þarna í jólavertíðinni.

Við viljum hvetja bókaútgefendur að nota bókmenntaverðlaunin til að efla umræðu og auðga lestur á öðrum árstímum. Jólin eru hektískur tími og þótt bækur seljist mest þá falla mun fleiri í sprungurnar og góð verk gleymast.

Sjaldnast eru jafnvel þau verk sem seljast mest lesinn á merkingarbæran hátt. Ekki gefst pláss til að skapa dýpri samræður en felst í samkeppni um stjörnugjöf. Þegar þúsund titlar koma út á ári þurfum við meiri tíma en bara þrjá mánuði til að skynja, skoða og lesa.

Skrítið að nota ekki bara allt árið.

Höfundar eru handhafar Íslensku Barnabókaverðlaunanna 2012 og Bókmenntaverðlauna starfsfólks bókaverslana 2012 og 2013.




Skoðun

Skoðun

Saman gegn ríkisofbeldi

Vilhjálmur Yngvi Hjálmarsson,Örlygur Steinar Arnaldsson,Sigurhjörtur Pálmason,Simon Valentin Hirt,Kristbjörg Arna E. Þorvaldsdóttir,Ari Logn,Margrét Rut Eddudóttir skrifar

Sjá meira


×