Innlent

Skriftarbarn getur ekki bundið samvisku prestsins

Biskup Íslands, Karl Sigurbjörnsson, hefur sent frá sér yfirlýsingu vegna greinar séra Geirs Waage og birtist í Morgunblaðinu í morgun. Þar sagði Geir að þagnarskylda presta gagnvart sóknarbörnum væri algjör og þar væri engan milliveg að finna.

Þessu mótmælir biskupinn og segir fyrirmæli barnaverndarlaga taka af allan vafa um tilkynningaskyldu presta.

„Fyrirmæli barnaverndarlaga taka af öll tvímæli um tilkynningaskyldu presta að hún gengur framar ákvæðum laga eða siðareglna um þagnarskyldu. Gengið er út frá því að velferð barnsins hafi forgang. Það er í fullu samræmi við hina kristnu siðfræði og mannsskilning sem setur barnið og velferð þess fremst," segir í yfirlýsingunni.

Í yfirlýsingunni segir ennfremur:

„Samkvæmt starfsmannalögum eru prestar eins og allir opinberir starfsmenn bundnir trúnaði og þagnarskyldu um það sem þeir verða áskynja í starfi og leynt skal fara. En jafn ljóst er að þeim ber að lúta fyrirmælum barnaverndarlaga.

Í skriftum ber presturinn þá ábyrgð að hlusta á syndajátningu einstaklings „í Guðs stað" og boða iðrun og fyrirgefningu syndanna í Jesú nafni. Þegar einstaklingur leitar prests til að skrifta, það er játa synd sína og þiggja fyrirgefningu syndanna eins og af Guðs munni, þá á það sér undanfara í samtali þar sem iðrun og yfirbót er mikilvæg forsenda.

Þó að presturinn sé bundinn trúnaði sem hann má ekki bregðast, þá getur skriftarbarnið ekki bundið samvisku prestsins. Íslensk lög og kirkjuréttur hafa gengið út frá því um langan aldur. Presti sem verður áskynja í skriftum að lífi eða heill annarra er ógnað er skyldugt að leiða viðkomandi fyrir sjónir að honum beri skylda til að koma í veg fyrir það og að prestinum sé skylt að tilkynna slíkt ef viðkomandi gerir það ekki sjálfur."





Athugið. Vísir hvetur lesendur til að skiptast á skoðunum. Allar athugasemdir eru á ábyrgð þeirra er þær rita. Lesendur skulu halda sig við málefnalega og hófstillta umræðu og áskilur Vísir sér rétt til að fjarlægja ummæli og/eða umræðu sem fer út fyrir þau mörk. Vísir mun loka á aðgang þeirra sem tjá sig ekki undir eigin nafni eða gerast ítrekað brotlegir við ofangreindar umgengnisreglur.

Fleiri fréttir

Sjá meira


×