Viðskipti innlent

Skrifstofur Plain Vanilla lausar fyrir næsta ævintýri

Kolbeinn Tumi Daðason skrifar
Ein af skrifstofum Plain Vanilla á Laugaveginum.
Ein af skrifstofum Plain Vanilla á Laugaveginum. Mynd af vefsíðu Reita
Fasteignafélagið Reitir auglýsir til leigu skrifstofuhúsnæði á 4. og 5. hæð á Laugavegi 77. Tölvuleikjafyrirtækið Plain Vanilla hefur verið þar til húsa undanfarin rúm tvö ár en skrifstofurýmið þótt afar flott. Fyrirtækið sagðist hafa þann metnað að vinnustaðurinn væri sá besti í heimi.

Ævintýrið er hins vegar úti í bili en síðustu starfsmönnum Plain Vanilla var sagt upp þann 31. ágúst. Gengið hafði illa hjá fyrirtækinu um nokkra hríð og allt traust lagt á að NBC myndi framleiða sjónvarpsþátt byggðan á spurningaleiknum Quiz Up. Bandaríski sjónvarpsrisinn sagði hins vegar nei takk og úr varð að stjórnendur Plain Vanilla sáu ekki annan kost í stöðunni en að segja upp starfsfólki sínu.

Sjá einnig:Ris og fall Plain Vanilla

Halldór Jensson, sölustjóri hjá Reitum, segir að fjórða hæðin geti verið laus þann 1. október næstkomandi og fimmta hæðin um áramót. Hann vill ekki gefa upp leiguverð en segir það fara eftir útfærslu þar sem hægt sé að skipta húsnæðinu upp í smærri einingar.

Eins og sjá má á myndunum er um flottar skrifstofur að ræða. Næstu leigjendur munu þó þurfa að kaupa eigin húsgögn en Halldór segir í samtali við Vísi að þau muni ekki fylgja nýjum leigjendum. Plain Vanilla ætli sér að selja húsgögnin.

Fróðlegt verður að sjá hverjir næstu leigjendur verða.

Myndirnar að neðan eru af vefsíðu Reita.




Tengdar fréttir

Komið að leikslokum hjá Plain Vanilla

Grundvöllur fyrir rekstri Plain Vanilla brást þegar ljóst varð að ekkert yrði úr gerð sjónvarpsþátta sem byggðu á leiknum. Mikil stemning ríkti innan fyrirtækisins 2013 og 2014.






Fleiri fréttir

Sjá meira


×