Lífið

Skrifaði kynlífslistann í meðferð

Lilja Katrín Gunnarsdóttir skrifar
Ærslabelgurinn Lindsay Lohan var gestur í þættinum Watch What Happens Live á sjónvarpsstöðinni Bravo í gær. Í þættinum viðurkenndi hún að hafa skrifað lista yfir þá karlmenn sem hún hafði stundað kynlíf með en listanum var síðan lekið í fjölmiðla.

„Ég ætla að vera alvarleg í smá stund. Þetta var fimmta sporið mitt í AA á Betty Ford-meðferðarstöðinni. Og einhver hlýtur að hafa tekið mynd af listanum þegar ég var að flytja,“ segir Lindsay og harmar lekann.

„Þetta er mjög persónulegt og mjög óheppilegt. Ég tala um þetta í síðasta þættinum á sjónvarpsstöðinni OWN,“ segir Lindsay en raunveruleikaþáttur um líf hennar er nú í sýningu á OWN sem er í eigu spjallþáttadrottningarinnar Opruh Winfrey.

Alls voru 36 nöfn á listanum fræga, þar á meðal Ashton Kutcher, Justin Timberlake, Colin Farrell, Heath Ledger, James Franco og Adam Levine.


Tengdar fréttir






Fleiri fréttir

Sjá meira


×