Innlent

Skrif Elliða talin særandi fyrir þá sem eru í sorgarferli

Jakob Bjarnar skrifar
Elliði er beðinn um að gæta orða sinna og taka tillit til þeirra sem eiga um sárt að binda.
Elliði er beðinn um að gæta orða sinna og taka tillit til þeirra sem eiga um sárt að binda.
Ljónshjarta, stuðningsfélag fyrir ungt fólk sem misst hefur maka og börn þeirra, hefur sent frá sér yfirlýsingu þar sem hörmuð eru ummæli Elliða Vignissonar, bæjarstjóra í Vestmannaeyjum, en hann líkir Sjálfstæðisflokknum við syrgjandi ekkju.

Í yfirlýsingunni segir að erfitt sé fyrir fólk sem á um sárt að binda að lesa ummæli sem eru til þess fallin að gera lítið úr stöðu þeirra. Þá segir jafnframt að ummæli sem þessi séu einnig særandi fyrir þá sem lengra eru komnir í sorgarferli sínu. Um 80 manns á aldrinum 24-45 ára týna lífi á ári hverju, ýmist af völdum sjúkdóma, slysa eða óvæntra atvika, og því er um verulegan fjölda að ræða sem á við sorg að etja hverju sinni. Þeir sem taka þátt í opinberri umræðu verði að gæta orða sina og taka tillit til þeirra sem eiga um sárt að binda.

Yfirlýsingin í heild sinni

„Í tilefni af samlíkingu Elliða Vignissonar, bæjarstjóra í Vestmannaeyjum, um að Sjálfstæðismenn séu eins og „syrjandi ekkja“, vill stjórn Ljónshjarta, stuðningsfélags fólks sem hefur misst maka og börn þeirra, skora á þátttakendur í daglegri, opinberri umræðu að taka tillit til þeirra sem hafa misst maka og eiga um sárt að binda vegna þess. Ummæli í líkingu við þau sem bæjarstjórinn lét falla hafa verulega særandi áhrif á félagsmenn Ljónshjarta, enda er þeim beint fram á völlinn með neikvæðum hætti í garð ekkna og ekkla.

Um 80 manns á aldrinum 24-45 ára týna lífi á ári hverju, ýmist af völdum sjúkdóma, slysa eða óvæntra atvika. Það gerir rúmlega eitt mannslíf í viku hverri, og enn þegar aldursflokkar eru teknir út. Eftir situr í flestum tilfellum maki og börn sem eiga um sárt að binda. Líklegt má telja að í sömu viku og ummæli bæjarstjórans féllu, hafi enn eitt sorgartilfellið skollið á einhverju heimilanna á Íslandi. Auðsætt er að fólk í fyrstu skrefum sorgarinnar á erfitt með að heyra eða lesa ummæli sem þessi, þar sem lítið er gert úr stöðu þeirra strax í öndverðu. Ummælin eru einnig særandi fyrir þá sem lengra eru komnir í sorgarferli sínu.

Óljóst er hvort að samlíkingar sem þessar eru settar fram af ráðnum hug eða af hugsunarleysi. Stjórn Ljónshjarta telur það engu breyta, þar sem markmið félagsins er fyrst og fremst að veita stuðning og hvetja stjórnmálamenn jafnt sem hinn almenna borgara til að sýna aðstæðum þeirra sem missa maka virðingu. Til að það sé gert verður að teljast nauðsynlegt að ummæli sem þessi séu öðrum ekki til eftirbreytni, heldur að hægt sé að draga lærdóm af þeim. Samlíkinga sem þessarar er ekki þörf, né eru þær nauðsynlegar til að leggja áherslu á mál sitt. Tungumál okkar hefur svo miklu meira fram að færa en þau. Að ofangreindu sögðu skorar stjórn Ljónshjarta á stjórnmálamenn og ábyrga þátttakendur í daglegri, opinberri umræðu að taka tillit til þess til framtíðar.

Með virðingu og vinsemd,

stjórn Ljónshjarta.“


Tengdar fréttir




Fleiri fréttir

Sjá meira


×