Matur

Skreytt með piparsmjörkremi og piparperlum

Guðný Hrönn skrifar
Þessi kaka mun slá í gegn hjá þeim sem elska piparsælgæti.
Þessi kaka mun slá í gegn hjá þeim sem elska piparsælgæti.

Lena Rut Guðmundsdóttir deilir með lesendum uppskrift að klassískri súkkulaðiköku sem auðvelt er að breyta og bæta eftir smekk. Að þessi sinni fullkomnaði hún hana með piparsmjörkremi.

„Áhuginn hefur verið til staðar frá því ég var lítil, mamma var alltaf dugleg að baka og ég fékk að vera með,“ segir Lena Rut sem elskar að baka og þá sérstaklega að skreyta kökur.

„Mér finnst gott að vera með eina svona klassíska uppskrift eins og þessa og geta þá breytt skreytingum, bragði á kremi eða fyllingu.“

„Kakan er einföld í bakstri en svo getur hver og einn skreytt eins og hann vill. Það ráð sem hefur gagnast mér best þegar ég skreyti með smjörkremi er að frysta botnana og skreyta þá hálffrosna, þá er auðveldara að eiga við kremið og fá slétta og fallega áferð,“ útskýrir Lena.

Klassísk súkkulaðikaka með piparsmjörkremi

3½ dl sykur

2 egg

4 dl hveiti

1 dl olía (bragðdauf)

¾ dl kakó

2 dl súrmjólk

1 dl uppáhellt kaffi

1 tsk. vanilludropar

1?½ tsk. matarsódi

1 tsk. lyftiduft

Aðferð:

Egg og sykur eru þeytt saman, svo er restinni bætt saman við og hrært.

Deigið er sett í tvö 20-22 cm hringform og kakan bökuð við 180°C í ca. 25-30 mínútur eða þar til hægt er að stinga gaffli í hana án þess að eitthvað festist á honum.

Ekki bara bragðgóð heldur líka falleg.MYND/LENA RUT

Krem

250 g smjör, mjúkt

ca. 600 g flórsykur

3 msk. lakkrísduft (ég notaði Dracula)

½ dl rjómi

Aðferð:

Smjör og flórsykur er hrært vel, lakkrísdufti er bætt við og í lokin er rjóminn settur út í og hrært vel. Þeir sem ekki vilja lakkrísduft geta skipt því út fyrir kakó.

Kakan er látin kólna og síðan er hún skreytt með piparperlum.






Fleiri fréttir

Sjá meira


×