Skoðun

Skref í rétta átt gegn ein­elti á vinnu­stöðum

Eygló Harðardóttir skrifar

Nýlega stóð Vinnueftirlit ríkisins ásamt velferðarráðuneytinu fyrir morgunverðarfundi um skref til framfara við að uppræta einelti, áreitni og ofbeldi á vinnustöðum. Eitt slíkt var setning reglugerðar um þessi mál árið 2004 og endurskoðun hennar á liðnu ári. Í samræmi við reglugerðina hafa mörg fyrirtæki og stofnanir unnið aðgerðaáætlanir og tekið á málum af alvöru. Þó þarf að gera betur og muna að þetta er viðvarandi verkefni sem aldrei má vanrækja.



Jöfnum höndum þarf aðgerðir til að fyrirbyggja einelti og efla faglega getu til að bregðast við eineltismálum. Skilningur á þessu er alltaf að aukast. Vonandi kemur að því að virkar eineltisáætlanir á vinnustöðum verði jafn sjálfsagðar og öryggisskór og heyrnarhlífar.



Rannsóknir hafa sýnt alvarlegar afleiðingar eineltis á þá sem fyrir því verða. Þekktar afleiðingar eru andleg og líkamleg vanlíðan og heilsubrestur. Aukin fíkniefna- og áfengisneysla þolenda er einnig þekkt og enn skuggalegri hlið er sú að sjálfsvígshætta eykst.



Hérlendar kannanir meðal nokkurra starfshópa gefa til kynna að um 8-20 prósent starfsmanna telja sig hafa upplifað einelti á vinnustað. Samkvæmt könnun meðal opinberra starfsmanna frá árinu 2008 sögðust tíu prósent hafa upplifað einelti á sl. tólf mánuðum, um þriðjungur þeirra sagði eineltið hafa varað í tvö ár eða lengur.



Vinnueftirlitið tekur við kvörtunum þeirra sem telja sig hafa orðið fyrir einelti eða annarri ótilhlýðilegri háttsemi á vinnustað og telja sig ekki hafa fengið lausn sinna mála. Árin 2004-2015 bárust yfir 200 slíkar kvartanar. Kvörtunum fer fjölgandi sem bendir til að þekking á málaflokknum hafi aukist og sömuleiðis kröfur um að tekist sé á við mál sem þessi. Ekki síst segir þetta okkur að þörf er á frekara starfi á þessu sviði.



Vegna þessa ákvað ég á þessu ári að veita tíu milljónir króna til Vinnueftirlitsins vegna verkefna sem tengjast félagslegum þáttum í vinnuumhverfi fólks.



Vinnum að því markmiði að allir vinnustaðir verði góðir og öruggir staðir þar sem fólki líður vel og fær notið sín til fulls við bestu aðstæður.

Þessi grein birtist fyrst í Fréttablaðinu.



Athugið. Vísir hvetur lesendur til að skiptast á skoðunum. Allar athugasemdir eru á ábyrgð þeirra er þær rita. Lesendur skulu halda sig við málefnalega og hófstillta umræðu og áskilur Vísir sér rétt til að fjarlægja ummæli og/eða umræðu sem fer út fyrir þau mörk. Vísir mun loka á aðgang þeirra sem tjá sig ekki undir eigin nafni eða gerast ítrekað brotlegir við ofangreindar umgengnisreglur.

Skoðun

Sjá meira


×