Glamour

Skrautlegir englar á tískupallinum í Kína

Ritstjórn skrifar
Bella Hadid
Bella Hadid Glamour/Getty
Eitt skrautlegasta partý ársins, tískusýning Victoria's Secret, var sýnd í Shanghai í gærkvöldi. Eins og fyrri ár var miklu tjaldað til, og sýningin mjög skrautleg.

Sýning undirfatamerkisins hefur verið haldin í París, New York, Los Angeles og Miami, en vegna vaxandi áhuga á merkinu í Asíu var ákveðið að hafa sýninguna í Shanghai. Tónlistarmennirnir Harry Styles, Miguel, Jane Zhang og Leslie Odom Junior komu fram. 

Fyrirsætan Lais Ribero sýndi hinn fræga skart-brjóstahaldara, sem metinn er á 2 milljónir bandaríkjadala, en það þykir mikill heiður að bera hann. 

Einnig var samstarf Olivier Rousteing hjá Balmain og Victoria's Secret kynnt, og fer það í sölu í næstu viku á vefsíðu undirfatamerkisins. 

Sjáðu hér mjög svo skrautlegar myndir frá sýningunni. 

Lais Ribero





×