Innlent

Skrautleg klessa eftir umferðarslys

Hulda Hólmkelsdóttir skrifar
fjórir bílar lentu saman á gatnamótum Hafnarfjarðavegar og Lyngáss um klukkan 18.
fjórir bílar lentu saman á gatnamótum Hafnarfjarðavegar og Lyngáss um klukkan 18. Vísir/Frosti
Ansi skrautleg klessa myndaðist eftir að fjórir bílar lentu saman á gatnamótum Hafnarfjarðavegar og Lyngáss.

Tilkynning barst vegna slyssins klukkan 18:02. Meðal annars virðist Nissan Qashqai jepplingur hafa lent ofan á Hyundai smábíl.

Samkvæmt upplýsingum frá slökkviliðinu á höfuðborgarsvæðinu eru bílarnir fjórir í „skrautlegri klessu,“ en engin slys urðu á fólki.




Fleiri fréttir

Sjá meira


×