Innlent

Skrautdúfur drápust í eldsvoða

Vísir/AFP
Margar dúfur drápust, en nokkrum tókst að bjarga, þegar eldur kom upp í húnsæði Skrautdúfnafélags Hafnarfjarðar í nótt, en húsið er í grennd við Álverið í Staumsvík.

Vegfarandi tilkynnti slökkviliðinu um reyk frá húsinu á fjóðra tímanum í nótt og var sendur slökkvibíll á vettvang, og þá kom í ljós að eldur logaði í húsinu. Dúfurnar voru í búrum og tókst slökkviliðsmönnum að bjarga nokkrum búrum út en flestar dúfurnar drápust.

Fólk frá félaginu kom á vettvang og annaðist þær sem komust af. Eldsupptök eru ókunn.




Fleiri fréttir

Sjá meira


×