Innlent

Skráningar um hagsmunatengsl hæstaréttardómara verða opinberar

Hulda Hólmkelsdóttir skrifar
Frá byrjun árs 2017 verða upplýsingar um hagsmunatengsl hæstaréttardómara aðgengilegar á heimasíðu réttarins.
Frá byrjun árs 2017 verða upplýsingar um hagsmunatengsl hæstaréttardómara aðgengilegar á heimasíðu réttarins. vísir/gva
Frá byrjun árs 2017 verða upplýsingar um hagsmunatengsl hæstaréttardómara aðgengilegar á heimasíðu réttarins. Þetta kemur fram í tilkynningu frá Hæstarétti. Mikil umræða hefur skapast um hagsmunaskráningu hæstaréttardómara eftir fréttir af hlutabréfaviðskiptum nokkurra dómara við Hæstarétt.

„Við ákvörðun um efni þessara upplýsinga hefur verið tekið mið af því sem dómurum ber að tilkynna nefnd um dómarastörf um samkvæmt fyrirmælum 26. gr. laga nr. 15/1998 um dómstóla og reglum settum samkvæmt þeim,“ segir í tilkynningunni.

Sjá einnig:Hlutabréf dómara opinber almenningi í Noregi

Jafnframt hefur verið litið til reglna Alþingis um skráningu á fjárhagslegum hagsmunum alþingismanna og trúnaðarstörfum utan þings, sem og hvernig þessum atriðum er hagað á Norðurlöndunum.

Á þessum grunni munu upplýsingarnar varða eftirfarandi meginatriði:

1. Aukastörf hvers og eins dómara ásamt því hvort greiðsla komi fyrir þau og þá úr hendi hvers.

2. Fasteignir í eigu dómara sem ætlaðar eru til annars en eigin nota fyrir hann og fjölskyldu hans.

3. Eignarhluta í hvers kyns félögum.

4. Allar skuldir dómara sem ekki tengjast beinlínis öflun fasteignar til eigin nota.

5. Aðild dómara að félögum sem ekki starfa með fjárhagslegu markmiði.

„Upplýsingar þessar munu miðast við stöðu í ársbyrjun 2017 og verða þær framvegis uppfærðar jafnskjótt og tilefni er til. Telji aðilar að einstökum dómsmálum sig þurfa að fá tilgreindar upplýsingar um eitthvert áðurgreindra atriða á tilteknu fyrra tímamarki varðandi dómara í málum þeirra geta þeir beint fyrirspurn um það til Hæstaréttar.“

Tilkynning Hæstaréttar:

Hæstiréttur hefur ákveðið að frá byrjun árs 2017 verði aðgengilegar á heimasíðu réttarins upplýsingar um hagsmunatengsl hæstaréttardómara. Við ákvörðun um efni þessara upplýsinga hefur verið tekið mið af því sem dómurum ber að tilkynna nefnd um dómarastörf um samkvæmt fyrirmælum 26. gr. laga nr. 15/1998 um dómstóla og reglum settum samkvæmt þeim. Jafnframt hefur verið litið annars vegar til reglna Alþingis um skráningu á fjárhagslegum hagsmunum alþingismanna og trúnaðarstörfum utan þings og hins vegar til þess hvernig atriðum sem þessum er hagað á Norðurlöndunum. Á þessum grunni munu upplýsingarnar varða eftirfarandi meginatriði:

1. Aukastörf hvers og eins dómara ásamt því hvort greiðsla komi fyrir þau og þá úr hendi hvers.

2. Fasteignir í eigu dómara sem ætlaðar eru til annars en eigin nota fyrir hann og fjölskyldu hans.

3. Eignarhluta í hvers kyns félögum.

4. Allar skuldir dómara sem ekki tengjast beinlínis öflun fasteignar til eigin nota.

5. Aðild dómara að félögum sem ekki starfa með fjárhagslegu markmiði.

Upplýsingar þessar munu miðast við stöðu í ársbyrjun 2017 og verða þær framvegis uppfærðar jafnskjótt og tilefni er til. Telji aðilar að einstökum dómsmálum sig þurfa að fá tilgreindar upplýsingar um eitthvert áðurgreindra atriða á tilteknu fyrra tímamarki varðandi dómara í málum þeirra geta þeir beint fyrirspurn um það til Hæstaréttar.


Tengdar fréttir

Markús telur sig ekki hafa verið vanhæfan

Markús Sigurbjörnsson, forseti Hæstaréttar, átti í umfangsmilklum hlutabréfaviðskiptum á árunum fyrir hrun en hefur ekki vikið sæti í svokölluðum hrunnmálum.

Hlutabréf dómara opinber almenningi í Noregi

Í Noregi eru upplýsingar um eignarhlut dómara í félagi eða fyrirtæki opinberar almenningi. Skúli Magnússon, formaður dómarafélags Íslands, segir ný lög um dómstóla sem taka gildi um áramótin strangari hvað eignarhlut dómara varðar.




Fleiri fréttir

Sjá meira


×