Skoðun

Skráning stjórnmálaskoðana

Haukur Arnþórsson skrifar

Fræðimenn hafa skrifað nokkuð um gagnsæi og hlutverk samþættra upplýsinga í samfélaginu og hvernig þessi hugtök hafa áhrif á persónuvernd og hafa slík fræði verið kennd við stjórnmáladeild HÍ. Þeir setja gjarnan fram að vega og meta þurfi persónuverndaráhættu í hverju og einu tilviki og hafa til hliðsjónar hlutverk og samfélagslegt gagn persónugreinanlegrar skráningar á upplýsingum. Það er að meta á málefnalegan hátt mikilvægi nýrrar skráningar á móti minni persónuvernd.

Betri ReykjavíkNú liggur fyrir að skráning Íbúa á stjórnmálaskoðunum almennings á vefnum Betri Reykjavík, þjónar ekki þeim tilgangi sem upphaflega var kynntur. Í viðtali við forstjóra Íbúa í Speglinum á rás 1 í sl. viku ítrekaði hann að enda þótt Reykjavíkurborg tæki mál á dagskrá ráða á grundvelli þessarar kosninga geta allir íbúar komið málum eftir öðrum leiðum á dagskrá þeirra, t.d. með því að senda bréf til þeirra. Þetta staðfesti borgarlögmaður í símtali við greinarhöfund. Þetta er sennilega gert vegna þess að val með netkosningu lítur ekki vel út fyrir stjórnkerfi borgarinnar, sérstaklega er möguleikinn að kjósa á móti máli sérkennilegur og getur unnið gegn minnihlutahópum. Þá er netkosning ekki málefnaleg leið við val mála og málshefjenda.



Úr því að forstjóri Íbúa og forsvarsmenn Reykjavíkurborgar leggja á það áherslu að íbúar borgarinnar geti farið aðrar leiðir við að koma málum á dagskrá í stjórnkerfi borgarinnar þá má spyrja sig: Af hverju er boðið upp á nákvæma kosningu á vefnum og þar með skráningu á stjórnmálaskoðunum almennings með tilheyrandi persónuverndaráhættu ef hún þjónar litlum eða engum tilgangi? Svo gæti virst að eina hlutverk skráningarinnar sé að kortleggja stjórnmálalegan vilja íbúanna nákvæmlega í gagnagrunnum félagsins.

Betra ÍslandSkráning skoðana á vefnum Betra Ísland hefur ekki verið réttlætt með neinu móti. Minnt skal á að þar er hægt að kjósa um flest eða öll mál sem liggja fyrir Alþingi. Þau mál eru oft lögð fram eftir flokkslínum. Önnur mál eru einnig lögð fram á vefnum. Á grundvelli skráningar hans geta Íbúar því gert ennþá nákvæmari prófíl af notendum hans en á vefnum Betri Reykjavík. Þeir geta m.a. greint stuðning við einstaka stjórnmálaflokka, með því að skoða afstöðu fylgismanna þeirra til þingmála og hvernig þeir bregðast við öðrum landsmálum.



Ef notendur eru á báðum vefjunum má samkeyra upplýsingar þeirra og fæst þá fram einstök mynd af stjórnmálavilja Reykvíkinga. Þannig getur Betra Ísland stóraukið persónuverndaráhættuna af rekstri Betri Reykjavíkur.



Stuðningur eða andstaða á vefjunum við mál hefur lítið eða ekkert lýðræðislegt gildi og gefur ákvörðunum ekki aukið lögmæti, hefur ekki beinan tilgang og netkosningin virðist því hreinn samkvæmisleikur. Við mat á ávinningi af kosningum á vefjunum hlýtur að koma í ljós að afar dýrt sé að skrá stjórnmálaskoðanir almennings kerfisbundið sé miðað við persónuverndarsjónarmið og opna með því móti möguleika á gerð nákvæms prófíls af þeim, samanborið við það samfélagslega gagn sem skráningin gerir. Kosningunni á vefjunum þyrfti því að hætta sem fyrst.



Athugið. Vísir hvetur lesendur til að skiptast á skoðunum. Allar athugasemdir eru á ábyrgð þeirra er þær rita. Lesendur skulu halda sig við málefnalega og hófstillta umræðu og áskilur Vísir sér rétt til að fjarlægja ummæli og/eða umræðu sem fer út fyrir þau mörk. Vísir mun loka á aðgang þeirra sem tjá sig ekki undir eigin nafni eða gerast ítrekað brotlegir við ofangreindar umgengnisreglur.

Skoðun

Skoðun

Saman gegn ríkisofbeldi

Vilhjálmur Yngvi Hjálmarsson,Örlygur Steinar Arnaldsson,Sigurhjörtur Pálmason,Simon Valentin Hirt,Kristbjörg Arna E. Þorvaldsdóttir,Ari Logn,Margrét Rut Eddudóttir skrifar

Sjá meira


×