Lífið

Skráning hafin í Jólastjörnuna 2014

Lilja Katrín Gunnarsdóttir skrifar
Skráning er hafin í Jólastjörnu ársins 2014 hér á Visir.is. Jólastjarnan er söngkeppni fyrir börn yngri en sextán ára og kemur sigurvegarinn fram á stórtónleikunum Jólagestir Björgvins eins og síðustu ár. 

Skráningu lýkur á miðnætti miðvikudaginn 22. október en þeir sem vilja skrá sig þurfa að syngja lag að eigin vali og senda inn hlekk á myndbandsupptökuna af söngnum. Myndböndin eða skrárnar skal merkja á þennan hátt: Jólastjarnan 2014 - Nafn keppanda.

Tíu bestu söngvararnir að mati dómnefndar verða boðaðir í prufur og eftir þær mun sigurvegarinn koma í ljós.

Ísland í dag á Stöð 2 mun fylgjast grannt með framvindunni og afhjúpa sigurvegarann þegar af því kemur en dómnefndina skipa Björgvin Halldórsson, Gissur Páll, Gunnar Helgason og Jóhanna Guðrún.

Skráðu þig í Jólastjörnuna 2014 hér.






Fleiri fréttir

Sjá meira


×