Innlent

Skothvellurinn í Kópavogi: Gat ekki setið á sér eftir að hafa fengið vopnið úr viðgerð

Tryggvi Páll Tryggvason skrifar
Málið telst að fullu upplýst.
Málið telst að fullu upplýst. Vísir/Hari
Lögreglan á höfuðborgarsvæðinu handtók í dag mann sem grunaður var um að hafa hleypt af skotvopni í Grundarhverfi í Kópavogi á níunda tímanum í kvöld. Maðurinn játaði að hafa verið að verki og hefur verið sviptur skotvopnaleyfi.

Lögregla var með töluverðan viðbúnað í Kópavogi í gær eftir að hafa fengið tilkynningu um skothvell. Sá sem tilkynnti hvellinn sagðist hafa mætt manni sem hafi haft skotvopn meðferðis.

Í ljósi aðstæðna var óskað eftir aðstoð sérsveitar ríkislögreglustjóra ásamt því að lögreglumenn Lögreglunnar á höfuðborgarsvæðinu, sem sinntu útkallinu, vopnuðust.

Maðurinn fannst ekki þrátt fyrir töluverða leit. Rannsókn málsins hélt áfram í dag og var einn maður handtekinn, grunaður um að hafa skotið af skotvopni innan bæjarmarka. Maðurinn hefur játað að hafa verið að verki, umrætt kvöld, en bar því við að hann hafi verið búinn að fá vopnið úr viðgerð og ekki getað setið á sér að kanna hvort að viðgerðin hafi tekist.

Lagt var hald á önnur skotvopn í eigu mannsins og hann sviptur skotvopnaleyfi. Málið telst að fullu upplýst.


Tengdar fréttir




Fleiri fréttir

Sjá meira


×