Erlent

Skotárás í verslunarmiðstöð í München

Atli Ísleifsson og Samúel Karl Ólason skrifa
Öryggisviðbúnaður hefur verið mikill í München síðustu daga.
Öryggisviðbúnaður hefur verið mikill í München síðustu daga. Mynd/epa
Minnst tíu eru látnir og tuttugu særðir eftir að árásarmaður hóf skothríð í verslunarmiðstöðinni Olympia-Einkaufszentrum í München í Þýskalandi. Lögreglan telur að árásarmaðurinn sé meðal hinna látnu og er hann talinn hafa svipt sig lífi. Þrír eru í lífshættu.

Lögreglan taldi upprunalega að árásarmennirnir hefðu verið allt að þrír, en nú virðist sem að aðeins einn maður hafi gert árásina. Um er að ræða 18 ára mann frá Íran sem bjó í Münich. Lík hans fannst í um kílómetra fjarlægð frá verslunarmiðstöðinni.

Ástæða árásarinnar liggur ekki fyrir. Hann heyrðist á myndbandi segjast vera þýskur og er hann sagður hafa öskrað óyrði í garð útlendinga.

Neyðarástandið hefur verið lýst yfir í borginni og mun öryggisráð Þýskalands funda á morgun.

Hætt verður að bæta við þessa frétt. Áfram verða sagðar fréttir af árásinni á morgun.

22:30


Lögreglan segir að minnst tíu séu særðir eftir árásina. Fjölmiðlar segja að þar á meðal séu einhverjir í lífshættu. Auk þess hafa borist fregnir af því að ein hinna látnu sé 15 ára stúlka og að börn séu meðal þeirra særðu.

22:20

Angela Merkel, kanslari Þýskalands, ætlar að kalla saman öryggisráð Þýskalands saman á morgun vegna skotárásarinnar. Starfsmannastjóri hennar sagði blaðamönnum að þau ætluðu að ganga úr skugga um að ótti og ómannleg hegðun ætti ekki möguleika á að blómstra í Þýskalandi.

21:30

Maður sem varð vitni að upphafi skotárásarinnar við McDonalds-staðinn, sagði þýskri sjónvarpsstöð að árásarmaðurinn hefði öskrað óyrði í garð útlendinga. Luan Zequiri sá einungis einn árásarmann.

Þá hafa borist fregnir frá þýskum miðlum að lögreglan telji einn hinna látnu vera árásarmann. Hann er sagður hafa svipt sig lífi. Maðurinn er með bakpoka og lögreglan er sögð óttast sprengja kunni að vera í honum.

20:45

Verslunarmiðstöðin hefur verið tæmd, en lögregluþjónar eru enn að störfum þar. Þeir eru að ganga úr skugga um að árásarmenn séu ekki í felum þar.



20:40

Lögreglan segir nú að níu séu látnir og verið er að kanna hvort að sá níundi sé einn af árásarmönnunum. Fjölmiðlar ytra höfðu sagt fyrr í kvöld að árásarmaður hefði mögulega svipt sig lífi.

20:32

Tala látinna er nú komin í átta samkvæmt lögreglu í München.

20:15

Fjölmiðlar í Þýskalandi segja að einn árásarmaðurinn hafi verið skotinn til bana, eða hafi tekið eigið líf. Mögulegt er að í raun hafi bara einn árásarmaður verið að verki, en lögreglan telur þá vera þrjá eftir að hafa rætt við vitni.

19:50


Myndband hefur nú verið birt af árásarmanni þar sem fólk á svölum er að öskra á hann og kalla hann öllum illum nöfnum. Árásarmaðurinn öskrar á þau til baka. Svo virðist sem að árásarmaðurinn segist hafa alist upp í Þýskalandi. Samkvæmt Sky News kallaði árásarmaðurinn: „Ég er þýskur.“

Bandarískur embættismaður segir að upprunalega hafi ISIS-liðar fagnað árásinni mjög á samfélagsmiðlum en seinna hafi dregið úr því þar sem þeir hafi talið mögulegt að aðrir hafi staðið að árásinni.

Ekkert hefur þó verið staðfest af lögreglu eða öðrum yfirvöldum.

19:40

Engar vísbendingar hafa fundist um að um árás íslamista hafi verið að ræða, samkvæmt lögreglunni.

Íbúar München eru hvattir til að koma öllum myndböndum sem þeir eiga af árásinni til lögreglu.

19:30


Enn liggja tölur um særða ekki fyrir en lögreglan hefur staðfest að minnst sex eru látnir. Þá getur lögreglan ekki staðfest að önnur skotárás hafi átt sér stað í neðanjarðarlestarkerfi borgarinnar.

Fjöldi árásarmanna hefur heldur ekki verið staðfestur, en lögreglan telur enn að þeir hafi verið þrír.

Allir viðbragðsaðilar á svæðinu hafa verið kallaðir út vegna ástandsins. Þá hafa lögregluþjónar frá Austurríki verið kallaðir til aðstoðar.

Lögreglan hefur þó staðfest að skotárás hafi einnig átt sér stað götu sem liggur nærri verslunarmiðstöðinni.

18:55

Fregnir hafa borist af því að læknar og hjúkrunarfræðingar í München hafi verið kölluð á vakt á sjúkrahúsum borgarinnar. Enn er ekki vitað hve margir eru látnir og særðir.



18:35

Búið er að lýsa yfir neyðarástandi í München. Götur borgarinnar eru nánast tómar en árásarmaðurinn, eða mennirnir, ganga enn lausir. Lögreglan leitar þeirra í miðbæ borgarinnar. Samgöngu hafa verið stöðvaðar og leigubílastjórar beðnir um að taka ekki farþega.

18:07

Lögreglan telur að um þrjá árásarmenn hafi verið að ræða. Íbúum borgarinnar er ráðlagt að halda sér heima fyrir og yfirgefa götur München.

Lögregla í München er nú með umfangsmiklar aðgerðir í borginni eftir að maður hóf skothríð á fólk í verslunarmiðstöðinni Olympia-Einkaufszentrum. Lögreglan segir að fólk hafi látið lífið í árásinni, en fjöldi þeirra hefur ekki verið staðfestur. Fjölmiðlar úti hafa talað um allt að fimmtán látna. Innanríkisráðherra Bavaríu segir að búið sé að staðfesta að þrír séu látnir.

Á myndbandi sem var er í dreifingu af samfélagsmiðlum má sjá mann hefja skothríð á fólk sem er á hlaupum frá honum fyrir utan McDonalds veitingastað. Maðurinn er sagður hafa flúið í átt að neðanjarðarlestarstöðinni á staðnum.

Verslunarmiðstöðin er í borgarhlutanum Moosach og hefur lögregla girt af svæði. Sérsveit lögreglunnar er komin á vettvang, sen starfsmenn verslunarmiðstöðvarinnar eru enn í felum. Fjölmiðlar hafa rætt við einhverja þeirra sem segja að fjölmörgum skotum hafi verið hleypt af.

Fregnir hafa borist af annarri skotárás á neðanjarðarlestarfstöð í borginni. Lögreglan segist ekki vitað hvort að um fleiri en einn árásarmann hafi verið að ræða, né hvar hann eða þeir eru staddir.

Öryggisviðbúnaður hefur verið mikill í München síðustu daga eftir að maður stakk fimm manns í lest í Bæjaralandi fyrr í vikunni. Yfirvöld hafa varað við hættu á frekari árásum.

Lögreglan í München greinir frá því á Twitter að mikil lögregluaðgerð standi yfir og hvetur fólk til að forðast svæðið í kringum verslunarmiðstöðina.

Vert er að vara lesendur við meðfylgjandi myndbandi af því þegar skotárásin hófst.



Fleiri fréttir

Sjá meira


×