Tuttugu og átta ára gamall maður særðist alvarlega eftir skotárás í Lekkende Mark, sunnan af Præstø, í Danmörku. Hann var fluttur á danska ríkisspítalann með þrjú skotsár á líkamanum.
Fórnarlambið vildi ekki gefa upplýsingar um árásarmennina. Danska lögreglan hefur því ekki miklar upplýsingar um málið. Tveir menn sáust keyra burt af vettvangi í gömlum, bláum BMW.