Erlent

Skotar vilja koma að Brexit úrskurði hæstaréttar

Samúel Karl Ólason skrifar
Nicola Sturgeon, forsætisráðherra heimastjórnar Skotlands.
Nicola Sturgeon, forsætisráðherra heimastjórnar Skotlands. Vísir/EPA
Yfirvöld í Skotlandi vilja koma að ákvörðun Hæstaréttar Bretlands vegna Brexit. Nicola Sturgeon, forsætisráðherra heimastjórnar Skotlands, segir að skoska þingið eigi einnig að staðfesta brottför Bretlands úr Evrópusambandinu, áður en af verður.

Dómstóll í Bretlandi úrskurðaði í síðustu viku að breska þingið þurfi að greiða atkvæði um hvort að yfirvöld Bretlands eigi að virkja 50. grein Lissabon-sáttmála ESB svo formlega megi hefja úrsagnaferlið.

Ríkisstjórn Theresu May tilkynnti strax að málinu yrði áfrýjað til Hæstaréttar. Til stendur að hann fjalli um málið í næsta mánuði.

Sturgeon segir ljóst að málið skipti Skotland miklu máli, en meirihluti Skota var andvígur því að yfirgefa ESB. Í þjóðaratkvæðagreiðslunni þar í landi í júní voru 62 prósent Skota sem vildu vera áfram í ESB.

Þá hafa Skotar látið í ljós að mögulega myndu þeir slíta sig frá Bretlandi ef af yrði.

Hún vill að þing Skotlands eigi einnig að staðfesta virkjun 50. greinarinnar. Æðsti embættismaður dómsmála Skotlands hefur nú farið fram á að hann fái að tjá sig um málið fyrir Hæstarétti í næsta mánuði.


Tengdar fréttir

Útganga Breta í uppnámi

Stjórn Theresu May hyggst áfrýja dómsúrskurði um að breska þingið þurfi að samþykkja útgöngu úr ESB. Dómstóllinn segir ríkisstjórn enga heimild hafa til að virkja útgönguákvæði ESB, þrátt fyrir þjóðaratkvæðagreiðsluna í s

Breskir þingmenn í bobba

Samkvæmt dómsúrskurði frá því á fimmtudag fer breska þingið eitt með ákvörðunarvald um úrsögn Bretlands úr Evrópusambandinu.




Fleiri fréttir

Sjá meira


×