Enski boltinn

Skoraði tvö mörk fyrir Liverpool en bæði voru dæmd af | Myndband

Óskar Ófeigur Jónsson skrifar
Adam Lallana.
Adam Lallana. Vísir/Getty
Adam Lallana og félagar í Liverpool unnu 2-1 sigur á Englandsmeisturum Manchester City í ensku úrvalsdeildinni í dag þökk sé tveimur frábærum mörkum frá þeim Jordan Henderson og Philippe Coutinho.

Liverpool er á góðu skriði í ensku úrvalsdeildinni og eftir þennan sigur eru lærisveinar Brendan Rodgers aðeins tveimur stigum á eftir Manchester United í baráttunni um fjórða og síðasta sætið inn í Meistaradeildina.

Adam Lallana skoraði reyndar tvö mörk fyrir Liverpool í þessum leik, á 9. og 54. mínútu, en þau voru bæði dæmd af vegna rangstöðu.

Lallana hefur skorað 4 mörk í 18 deildarleikjum á sínu fyrsta tímabili með Liverpool en hann spilaði í þriggja manna sóknarlínu með þeim Philippe Coutinho og Raheem Sterling.

Það er hægt að sjá þessi ólöglegu mörk Adam Lallana hér fyrir neðan.


Tengdar fréttir




Fleiri fréttir

Sjá meira


×