Fótbolti

Skoraði á fyrstu mínútu á móti bæði Real og Barca | Myndbönd

Óskar Ófeigur Jónsson skrifar
Fernando Torres fagnar hér í gær.
Fernando Torres fagnar hér í gær. Vísir/Getty
Fernando Torres og félagar hans í Atlético Madrid duttu í gær út út spænska bikarnum eftir 3-2 tap á móti Barcelona en Barcelona fór áfram samanlagt 4-2.

Fernando Torres skoraði í leiknum í gær og hann náði einnig að skora á móti Real Madrid þegar Atlético-liðið sló út nágranna sína í síðustu umferð spænska bikarsins en Torres skoraði þá tvö mörk í 2-2 jafntefli sem dugði liðinu.

Það sem er merkilegt fyrir þessi mörk Fernando Torres á móti stórliðunum Real Madrid og Barcelona að hann skoraði á fyrstu mínútu í báðum þessum leikjum. Það liðu líka aðeins þrettán dagar á milli þessara leikja.

Á móti Real Madrid skoraði Fernando Torres eftir 46 sekúndur og á móti Barcelona kom hann Atlético Madrid yfir eftir aðeins 38 sekúndur. Þess má geta að Torres skoraði einnig á fyrstu mínútu í seinni hálfleik á móti Real Madrid.

Fernando Torres á enn eftir að skora í spænsku deildinni fyrir Atlético Madrid en hann er í láni hjá uppeldisfélagi sínu frá ítalska liðinu AC Milan.

Hér fyrir neðan má sjá bæði mörkin sem Fernando Torres hefur skorað í upphafi þessara þriggja hálfleikja í efra myndbandinu sem og helstu atvik úr leiknum í gær í neðra myndbandinu.

Mörk Fernando Torres. Mörkin úr bikarleik Barcelona og Atlético Madrid



Fleiri fréttir

Sjá meira


×