Innlent

Skorað á stjórnvöld að slíta stjórnmálasambandi við Ísrael

Jakob Bjarnar Grétarsson skrifar
Illugi telur nauðsynlegt að ýta við íslenskum stjórnvöldum.
Illugi telur nauðsynlegt að ýta við íslenskum stjórnvöldum. Vísir/GVA/GVA
Illugi Jökulsson rithöfundur hefur efnt til undirskriftasöfnunar á netinu en þar er hvatt til þess að Ísland slíti stjórnmálasambandi við Ísrael. Hann telur nauðsynlegt að ýta við íslenskum stjórnvöldum að þau taki afgerandi afstöðu til stöðu mála á Gaza-svæðinu.

Eina sem við getum gert

„Mér, eins og fleirum, hefur bara blöskrað það sem þarna er að gerast,“ segir Illugi. Gunnar Bragi Sveinsson utanríkisráðherra sagði í kvöldfréttum RÚV í gær að frekar ætti að ræða við ráðamenn í Ísrael en að slíta sambandi við þá.

„Það er löngu fullreynt, hvað svo sem okkar góði utanríkisráðherra segir, að það þýðir ekkert að ræða við Ísraelsmenn,“ segir Illgugi. „Ég held að þess vegna sé það eina sem við getum gert í stöðunni til að lýsa almennilega yfir hryllingi okkar og viðbjóði á því sem Ísraelsmenn eru að gera þarna að slíta við þá stjórnmálasambandi.

Þetta var það eina sem virkaði í Suður-Afríku, þegar aðskilnaðarstefnan var upp á sitt versta, það var að einangra landið. Það var einangrun og slit á stjórnmálasambandi sem á endanum varð til þess að hvítir menn í Suður-Afríku gáfust upp á sinni ömurlegu stefnu. Ég held að þetta sé það eina sem við getum gert.“

Rúmlega 600 Palestínumenn hafa látið lífið í átökunum síðustu vikur.Vísir/AP
Siðferðisleg yfirlýsing

Menn benda oft á að Ísland sé lítið lóð á vogarskálarnar, þá til dæmis sé litið til milliríkjaviðskipta.

„Ég held að þetta sé fyrst og fremst siðferðisleg yfirlýsing sem muni vekja athygli,“ segir Illugi. „Við erum eitt af þeim ríkjum sem bar ábyrgð á stofnun Ísraels á sínum tíma, árið 1948, og í raun og veru skiptir ekki öllu máli hvort að við höldum að svona skref muni leysa deiluna. Ég er ekki að gera mér neinar vonir um það. En þetta er skref sem við verðum að stíga, finnst mér, fyrst og fremst til að lýsa okkar hryllingi og viðbjóði á framferði Ísraelsmanna sem þarna er í gangi.“

Illugi stefnir að því að leggja undirskriftirnar fram á fimmtudaginn, þá er utanríkisnefnd Alþingis kemur saman. 


Tengdar fréttir

Krafa að blóðbaðinu á Gaza ljúki

Fjölmenni á mótmælafundi Ísland-Palestína á Lækjartorgi síðdegis í dag. Skorað á íslensk stjórnvöld að beita sér.

Segir Ísraela fremja þjóðarmorð á Gasa

Mustafa Barghouti, læknir sem hlotið hefur tilnefningu til friðarverðlauna Nóbels, segir ástandið á Gasa skelfilegt og kallar eftir efnahagsþvingunum gegn Ísrael.

Obama ítrekar stuðning Bandaríkjanna við Ísrael

Barack Obama, forseti Bandaríkjanna, sagði á blaðamannafundi í Hvíta húsinu í dag að hann hefði rætt við Benjamin Netanyahu. forsætisráðherra Ísraels, um ástandið á Gaza.




Fleiri fréttir

Sjá meira


×