Innlent

Skora á yfirvöld að flýta framkvæmdum við Vesturlandsveg

Atli Ísleifsson skrifar
Skýrsla Vífils Karlssonar hagfræðings um ástand vega á Vesturlandi var lögð fyrir fund bæjarráðs Akranessbæjar í gær.
Skýrsla Vífils Karlssonar hagfræðings um ástand vega á Vesturlandi var lögð fyrir fund bæjarráðs Akranessbæjar í gær. vísir/nanna
Bæjarráð Akraness hefur skorað á samgönguyfirvöld að flýta framkvæmdum við Vesturlandsveg.

Skýrsla Vífils Karlssonar hagfræðings um ástand vega á Vesturlandi var lögð fyrir fund bæjarráðs í gær, en skýrslan var unnin fyrir samtök sveitarfélaga á Vesturlandi. Kemur þar fram að fjárveiting til Vesturlandsvegar nemi um helming af fjárveitingu til Reykjanesbrautar á tíu ára tímabili, eða á árunum 2005 til 2014.

Í bókun bæjarráðs segir að skorað sé á samgönguyfirvöld að forgangsraða fjárveitingum í þágu umferðaröryggis og hefja nú þegar breikkun á Vesturlandsvegi.

„Nýjustu tölur frá Vegagerðinni sýna mikla aukningu umferðar á milli ára á flestum vegum landsins. Aukningin er hvað mest á Vesturlandi en umferð um Hvalfjarðargöng hefur aukist um 21% á fyrstu 5 mánuðum ársins miðað við sama tímabil ársins 2015. Í síðastliðnum júní mánuði fóru tæplega átta þúsund bílar í gegnum göngin daglega.

Samkvæmt yfirliti Vífils Karlssonar hagfræðings sem hefur borið saman útgjöld til nýframkvæmda og reksturs á Vesturlandsvegi, Suðurlandsvegi og Reykjanesbraut síðastliðin 10 ár eða  frá 2005 til 2014 kemur fram að útgjöld til Vesturlandsvegar eru um helmingi lægri en til Reykjanesbrautar á þessu tímabili og um 15% lægri en til Suðurlandsvegar.

Sú mikla fjölgun ferðamanna sem við sjáum á Íslandi á allra síðustu árum gerir úrbætur í vegamálum að einu brýnasta samfélagsverkefni okkar um þessar mundir. Í gildandi samgönguáætlun er gert ráð fyrir því að hefja breikkun Vesturlandsvegar á árunum 2019 til 2022. Að mati bæjarráðs á Akranesi er verkefnið svo brýnt að flýta verður framkvæmdum eins og kostur er. Það er með öllu óviðunandi að árið 2016 sé enn verið að keyra einbreiðan Vesturlandsveg og að sú verði raunin næsta áratug eða svo," segir í áskoruninni sem hefur verið send samgönguyfirvöldum og þingmönnum norðvesturkjördæmis.




Fleiri fréttir

Sjá meira


×