Fótbolti

Skora á UEFA að láta Barca og PSG spila aftur

Henry Birgir Gunnarsson skrifar
Það eru ekki allir sáttir við ótrúlega endurkomu Barcelona gegn PSG í Meistaradeildinni og nú hafa vel yfir 200 þúsund manns skorað á Knattspyrnusamband Evrópu, UEFA, að spila leikinn upp á nýtt.

PSG vann fyrri leik liðanna 4-0 en Barcelona svaraði með ótrúlegum 6-1 sigri sem fleytti liðinu áfram. Þrjú síðustu mörk Barcelona komu á síðustu sjö mínútum leiksins.

Svekktur og súr stuðningsmaður Real Madrid hefur nú sett áskorun í loftið um að úrslit leiksins verði þurrkuð út vegna dómaramistaka Deniz Aytekin. Þess í stað verði leikurinn spilaður á ný.

Aytekin var harðlega gagnrýndur fyrir vítin tvö sem hann dæmdi á PSG og fyrir að dæma ekki á Javier Mascherano, leikmann Barcelona, er hann braut á Angel di Maria innan teigs.

Vel yfir 200 þúsund manns höfðu skrifað undir áskorunina í morgun en það verður að teljast ólíklegt að UEFA aðhafist nokkuð. Sama hversu margir skrifa undir.


Tengdar fréttir

Sturlaðar staðreyndir um sigur Barcelona í gær

Barcelona er komið áfram í átta liða úrslit Meistaradeildarinnar. Það þarf ekki að koma neinum á óvart að eitt besta lið heims fari áfram en hvernig Börsungar fóru að því verður hér eftir hluti af knattspyrnusögunni.

Lagerbäck sorgmæddur út af leikaraskap Suarez

Lars Lagerbäck, fyrrum landsliðsþjálfari Íslands, varð sorgmæddur er Luis Suarez, framherji Barcelona, fiskaði vítaspyrnu í hinum ótrúlega leik Barcelona og PSG í gær.

Velkomnir í endurkomuklúbbinn

Barcelona framkvæmdi íþróttakraftaverk númer tvö á á árinu í gær og það var vel við hæfi að hitt kraftaverkaliðið skildi óska Barcelona til hamingju í gær.




Fleiri fréttir

Sjá meira


×