Skora á stjórnvöld að endurnýja gervigrasvelli vegna eiturefna sunna karen sigurþórsdóttir skrifar 25. september 2015 15:06 Foreldrar eru afar ósáttir.
Stjórn Heimilis og skóla – landssamtaka foreldra hefur farið fram á það við sveitarfélög landsins að gervigrasvellir sem þaktir eru gúmmíkurli úr dekkjum verði endurnýjaðir, í ljósi frétta um að dekkjakurl á fótboltavöllum innihaldi krabbameinsvaldandi efni. Samtökin vísa í frétt Morgunblaðsins þar sem fram kemur að bandarísk ungmenni sem hafi alist upp á slíkum dekkjarkurlsvöllum séu í auknum mæli að greinast með krabbamein. Þá er jafnframt vísað í orð Þórarins Guðnasonar hjartalæknis sem benti á hætturnar sem af dekkjakurlinu stafa. „Í dekkjakurli eru krabbameinsvaldandi efni og önnur eiturefni sem geta verið hættuleg fyrir börn og aðra iðkendur íþrótta á gervigrasvöllum. Í ýmsum nágrannalöndum okkur er mælt með takmörkun dekkjakurls vegna þessara efna. Slíkar takmarkanir eru í Þýskalandi og Svíþjóð. Norðmenn hafa rannsakað nokkuð og bent á hættuna á umhverfisáhrifum af kurlinu á nærlendi grasvalla,“ sagði Þórarinn árið 2010 í kjölfar ályktunar Læknafélagsins, þar sem hvatt var til að banna notkun dekkjakurls á íþrótta- og leiksvæðum. „Það er viðurkennt að í hjólbörðum eru ýmis eiturefni sem meðhöndla verður af varúð. Skýrar reglur eru til staðar um meðhöndlun og förgun ónýtra hjólbarða en þegar búið er að kurla dekkin niður og dreifa þeim á íþróttasvæði barna og unglinga gilda reglurnar ekki. Þó er ljóst að eiturefnin eiga mun greiðari leið út í umhverfið úr dekkjakurlinu en þegar þau eru bundin við heila hjólbarða.“ Fara samtökin því fram á það við stjórnendur sveitarfélaga að unnið verði að því án tafar að endurnýja þá velli sem þaktir eru dekkjakurlinu svo börn þeirra geti leikið sér og þjálfað sína færni, örugg og við heilsusamlegar aðstæður.
Tengdar fréttir Krefja borgina um hættulaust kurl á gervigrasvellina án tafar „Ef við getum ekki breytt þessu, þá er ekki hægt að breyta neinu,“ segir Freyr Hermannsson foreldri í Reykjavík, sem vill að börnin fái að njóta vafans. 25. september 2015 09:00 Mest lesið Lokuðu þorpi í leit að svörum um hvarf tveggja ára drengs Erlent Stærsti gígurinn orðinn „formfagur“ Innlent Lýsisskip strandaði í Fáskrúðsfirði Innlent Voru sérstaklega varaðir við árás frá ISKP Erlent Ísland að tapa í slagnum um ferðamenn Innlent Átta ára stúlka sú eina sem lifði rútuslys af Erlent Vilja einfalda fólki að komast til sjúkraþjálfara Innlent „Það þarf að stoppa svona menn áður en þeir drepa einhvern“ Innlent „Hvergi í verklagsreglum að við séum að reka fólk í burtu“ Innlent Hætt við framboð og vonast eftir þjóðhollum og guðræknum forseta Innlent Fleiri fréttir Ógnaði dyraverði skemmtistaðar með hníf Lýsisskip strandaði í Fáskrúðsfirði Stærsti gígurinn orðinn „formfagur“ Vilja einfalda fólki að komast til sjúkraþjálfara Vélsleðamaður lenti í snjóflóði Kvöldfréttir Stöðvar 2 Hætt við framboð og vonast eftir þjóðhollum og guðræknum forseta Ísland að tapa í slagnum um ferðamenn „Hvergi í verklagsreglum að við séum að reka fólk í burtu“ Aðstoða göngumann á Móskarðshnjúkum Íbúar Hlíða velta fyrir sér dularfullum hvelli Ísland sé í torfkofanum í meðferð alvarlegra atvika Ný og glæsileg skólaþyrping byggð á Hellu Hamfaragámur Bónus tryggir kældan mat í neyðarástandi Fullkomlega sáttur við ákvörðun sína en útilokar ekkert „Það þarf að stoppa svona menn áður en þeir drepa einhvern“ Hádegisfréttir Bylgjunnar Svipar til gamalla óupplýstra rána Sýknaður af ákæru um að hafa tekið í háls barns Bjartur skírdagur fram undan í höfuðborginni Líkamsárás til rannsóknar eftir nóttina Fjölskylda í norðurljósaleit hrakin á brott af leiðsögumönnum Vilja koma böndum á bókhald trúfélaga Ferðaóðir Íslendingar þyrpast í ferðalög innanlands sem utan Verulega brugðið yfir Hamraborgarmálinu Hátt í hundrað dauðsföll á þremur árum Týndi vinningshafinn gaf sig fram og græddi níu milljónir Felldu úr gildi friðlýsingu en mátu Mumma ekki vanhæfan Kvöldfréttir Stöðvar 2 Býr á Íslandi en dæmd í sex ára fangelsi í Rússlandi Sjá meira
Krefja borgina um hættulaust kurl á gervigrasvellina án tafar „Ef við getum ekki breytt þessu, þá er ekki hægt að breyta neinu,“ segir Freyr Hermannsson foreldri í Reykjavík, sem vill að börnin fái að njóta vafans. 25. september 2015 09:00