Innlent

Skora á ríkisstjórnina að koma Mývatni til bjargar

Samúel Karl Ólason skrifar
Vísir/GVA
Landvernd skorar á ríkisstjórn Íslands að grípa þegar til ráðstafana til bjargar lífríki Mývatns og Laxár. Samtökin hafa sent bréf á ríkisstjórn Íslands vegna bráðrar hættu sem stafar af lífríki vatnsins vegna næringarefnaauðgunar.

„Ofauðgunin hefur leitt til mikils vaxtar blágerla, svokallaðs leirloss, í vatninu sem dregur úr birtuskilyrðum í vatnsbol og á botni og þar með vexti þörunga, undirstöðufæðu vatnsins. Kúluskíturinn er horfinn af botni, hornsílastofninn hefur aldrei verið minni og bleikjan er svipur hjá sjón miðað við það sem áður var,“ segir í bréfinu.

Enn fremur segir þar að Landvernd meti það afar mikilvægt að sameina krafta sveitarstjórnar, ríkisvalds og ferðaþjónustuaðila á svæðinu. Grípa eigi til allra mögulegra aðgerða sem dragi úr áhrifum mannsins á lífríki svæðisins, ekki síst vegna skólplosunar.

„Skútustaðahreppur hefur lýst því yfir að hann, einn og sér, hafi ekki fjárhagslegt bolmagn til að ráðast í nauðsynlegar aðgerðir í fráveitumálum svo draga megi úr mengun frá ferðaþjónustu og annarri starfsemi. Landvernd skorar því á ríkisstjórnina að hlaupa undir bagga með sveitarfélaginu í þeim efnum og enn fremur að tryggja fjármagn til frekari rannsókna. Aðkoma ríkisvaldsins er bráðnauðsynleg til að vernda lífríki Mývatns og Laxár.“

Þá segir einnig að forðast eigi alla röskun af mannavöldum á næringarefnaflæðis til vatnsins. Til dæmis fylgi frekari jarðvarmanýtingu í Bjarnarflagi og á Kröflusvæðinu mikil óvissa.


Tengdar fréttir




Fleiri fréttir

Sjá meira


×