Skopmyndasamkeppni um Eggert Magnússon 29. nóvember 2006 12:15 Segist taka umfjöllun breskra fjölmiðla nokkuð létt en ágangur þeirra hafi komið sér á óvart. „
Ég missi ekki svefn yfir þessu og tek þessu mjög létt," segir Eggert Magnússon, stjórnarformaður enska úrvalsdeildarliðsins West Ham, en hann hefur fengið að upplifa svartan húmor bresku pressunnar af eigin raun. Íþróttavefur The Guardian efnir meðal annars til skopmyndasamkeppni þar sem Eggert verður í aðalhlutverki en hann kemur á eftir Mike Newell, knattspyrnustjóra Luton, sem kom sér á forsíður blaðanna fyrir niðrandi ummæli um konur. Það ætti að verða forvitnilegt að sjá hvaða augum gamansamir Bretar líta stjórnarformanninn. Eggert hefur verið uppnefndur Kex-baróninn vegna gamalla tengsla við kexverksmiðjuna Frón og sagðist eitt af götublöðum Lundúna ætla að gefa stuðningsmönnum West Ham kex fyrir fyrsta leik liðsins eftir að Eggert tók við formennsku. Þá hafa önnur blöð látið þýða hluta úr stuðningsmannatextum West Ham. Eggert segist hafa séð þessar fréttir en minna hafi borið á því að þær yrðu að raunveruleika. „Ég verð bara að lifa með þessu en þetta fer kannski að verða óþægilegt því bæði Pétur og Páll eru farnir að stoppa mig úti á götu og vilja ræða málin," útskýrir Eggert sem segir að þessi mikli ágangur fjölmiðla hafi komið honum svolítið spánskt fyrir sjónir. „Fótboltinn er hins vegar kapítuli út af fyrir sig hérna og snertir tilfinningar á öðruvísi hátt en annars staðar," segir Eggert sem býst síður við að því fari að ljúka. „Þetta er bara svona í kringum knattspyrnuna á Bretlandi og ég verð að taka þessu eins og hverju öðru hundsbiti."-
Menning Mest lesið Hætt saman en ennþá vinir Lífið Segir Weinstein hafa bannað sér að vera lesbía Lífið Þreföld útgáfa Drake: „Þessi gaur er stærsti rappari allra tíma“ Tónlist Rassaumhirða karla í sókn Lífið Þorgerður Katrín og Sólveig Anna í þrumustuði í Þulu Menning Madonna með heitustu dansmynd ársins Tónlist Leggja áherslu á liti, gleði og glimmer Lífið Varð ástfanginn á sama tíma og móðir hans kvaddi Lífið Vigdís Häsler og Sveinn Andri gengu í hnapphelduna Lífið Enginn venjulegur sjötugur maður Gagnrýni Fleiri fréttir Rassaumhirða karla í sókn Leggja áherslu á liti, gleði og glimmer Segir Weinstein hafa bannað sér að vera lesbía Hætt saman en ennþá vinir Varð ástfanginn á sama tíma og móðir hans kvaddi Lára Clausen lýsir eftir stolnum Mustang Blendnar tilfinningar að fara á vinnumarkað á ný Lofuðu svörtu fólki lækningu en blekktu það til dauða „Ég passaði mig sérstaklega á því að tala ekki um Evrópusambandið“ Vigdís Häsler og Sveinn Andri gengu í hnapphelduna Huggulegustu hommar landsins „loksins“ giftir Adam Páls fann ástina í örmum Moniku Stjörnulífið: Rapparar ástfangnir upp fyrir haus Myndaveisla: Líf og fjör úti á Granda Hringdi strax í pabba og sagði honum frá Bond-leiknum Krakkatía vikunnar: Jónas, þjóðardýr og einmanalegt áhugamál Verður yngsta skvettan í þingflokki Sjálfstæðismanna Vesturbæingar kvöddu sögufræga bensínstöð Allt að verða klárt fyrir Sjómannadaginn í Reykjavík Allir og amma þeirra senda kónginum afmæliskveðju Fann ástina á Tinder og endaði í Texas Þegar tónlistin heltók lögmanninn Fréttatía vikunnar: Dua, Danir og Carpenter Anthony Head er látinn Emilíana Torrini selur einbýlishús á 250 milljónir „Aldrei of seint að gera hlutina“ „Þetta skiptir okkur mjög miklu máli“ Einmanalegt áhugamál fjögurra íslenskra stráka Krónprinsessan inn og út af sjúkrahúsi „Við höfum oftar en einu sinni fundið hann í fjöru“ Sjá meira