Lífið

Skóli í einstöku umhverfi

Gunnþóra Gunnarsdóttir skrifar
„Það er ekki bara höfuðið sem er í skólanum,“ segir Eiríkur glaðlega, um áherslurnar í Waldorfskólanum.
„Það er ekki bara höfuðið sem er í skólanum,“ segir Eiríkur glaðlega, um áherslurnar í Waldorfskólanum. Vísir/Pjetur
Í skógi vaxinni hvilft skammt fyrir ofan borgina kúrir Waldorfskólinn í Lækjarbotnum, elsti grunnskóli landsins sem starfar samkvæmt hugmyndafræði Rudolfs Steiner, hins þýska. Nú eru þar 70 börn í 1. til 10. bekk.

„Hér erum við í einstöku umhverfi og það er upplifun fyrir börn úr borginni að koma hingað og kynnast náttúrunni í alls konar veðri,“ segir Eiríkur Gunnarsson sem hefur kennt við skólann frá 1993, með fimm ára hléi sem hann notaði til náms erlendis.

„Fræinu sáði Sesselja á Sólheimum,“ segir Eiríkur, inntur eftir upphafinu. „Allt frá 1930 vann hún eftir stefnu Steiners og var brautryðjandi á Norðurlöndunum. Það fólk sem stofnaði Waldorfskólann kynntist hugmyndinni hjá henni og menntaði sig svo í fræðunum.

Eiríkur segir mikið lagt upp úr því í skólanum að þroska manneskjuna sem heild.

„Áherslan er ekki bara á bóknám, við leyfum börnunum líka að gera mikið með höndunum og nota sköpunargáfuna á fjölbreyttan hátt. Í okkar augum eru þessir þættir allir jafn mikilvægir sem veganesti út í lífið. Við erum líka búin að vera með moltugerð frá upphafi og allir nemendur sá fræjum, sinna ræktun og uppskera.“

Eiríkur telur tækni nútímans spilla tengslum barna við sjálf sig, því sé tölvunotkun seinkað í Waldorfskólanum, miðað við aðra grunnskóla. „Við teljum betra fyrir börnin að gera hlutina fyrst á blaði í stað þess að stytta sér leið með tölvuforritum.  Þau fá hér námskeið í margmiðlunar­tækni í 8., 9. og 10. bekk, þá verða tækin verkfæri í höndum þeirra. Einhvern tíma birtist blaðapistill um að forstjórar tölvufyrirtækjanna í Silicon Valley í Bandaríkjunum sendi börn sín í Waldorfskóla, þar sem engar tölvur eru.“

Í tilefni 25 ára afmælis skólans verður leiksýning í Gamla bíói í dag klukkan 17, svo verður hátíð í Lækjarbotnum 21. maí og opið hús allan daginn.








Fleiri fréttir

Sjá meira


×