Lífið

Skólastjóri tilkynnti um lokun skólans með því að syngja með Let It Go

Atli Ísleifsson skrifar
Skólastjórinn Matt Glendenning.
Skólastjórinn Matt Glendenning.
Bandaríski skólastjórinn Matt Glendenning tilkynnti um lokun Moses Brown skólans í borginni Providence vegna snjóbylsins sem gekk yfir norðausturhluta Bandaríkjanna í gær með því að syngja með laginu Let It Go og birta á YouTube.

Hinn 50 ára Glendenning hefur fengið mikið lof fyrir myndbandið. Hann hafði breytt texta lagsins nokkuð þar sem hann hvatti nemendur meðal annars til að hanga heima og leika sér.

Sjá má myndbandið að neðan.


Tengdar fréttir






Fleiri fréttir

Sjá meira


×