Handbolti

Skólakrakkar í meirihluta áhorfenda

Henry Birgir Gunnarsson skrifar
Krakkarnir í stuði í stúkunni en eins og sjá má var nóg af lausum sætum í þessari 5.300 manna höll.
Krakkarnir í stuði í stúkunni en eins og sjá má var nóg af lausum sætum í þessari 5.300 manna höll. vísir/hbg
Það er oft erfitt að fá áhorfendur á völlinn á HM og sérstaklega í þeim leikjum sem fara fram um miðjan dag.

Þá hefur æði oft verið brugðið á það ráð að bjóða skólakrökkum að koma frítt á völlinn svo það séu ekki neyðarlega fáir í stúkunni.

Þetta gamla trikk er notað hér í Metz þar sem skólakrakkar voru um 80 prósent áhorfenda á leik Angóla og Slóveníu. Leikurinn hófst klukkan 14.00 á staðartíma.

Án þeirra hefði stemningin verið pínlega léleg. Það sem meira er þá voru krakkarnir með læti nánast allan leikinn og mynduðu ágæta umgjörð um þennan fyrsta leik í B-riðli. Þeir fengu líka veislu því það var mikið skorað í leiknum sem endaði með 42-25 sigri Slóvena.

Verður áhugavert að sjá hvernig mætingin verður í hinum tveimur leikjum dagsins.


Tengdar fréttir

HM-pistill: Hvaða lag mun drengjakór Geirs syngja?

Það er ótrúlega áhugavert heimsmeistaramót fram undan hjá strákunum okkar. Það er svo mikið af ungum mönnum í Metz núna að þetta eru eiginlega bara drengir. Því er vel við hæfi að tala um drengjakór Geirs eins og Gaupi byrjaði á svo skemmtilega.

Ólafur: Mæti með kassann úti í þetta verkefni

"Við ætlum að ná í úrslit of ná sem bestu út úr þessu móti. Það er spennandi leikur í kvöld við Spánverja og þar ætlum við að ná í tvö stig,“ segir Ólafur Guðmundsson sem verður í stóru hlutverki í kvöld í fjarveru Arons Pálmarssonar.

Gef ungu drengjunum tækifæri

Geir Sveinsson ætlar að nýta þetta tímamótamót hjá handboltalandsliðinu til þess að byggja upp til framtíðar. Kynslóðaskiptin verða nánast kláruð á HM í Frakklandi eftir ótrúleg ár hjá gullaldarlandsliði Íslands.

Ég gef frá mér orku á vellinum

Það bíða margir spenntir eftir því að sjá hinn magnaða Janus Daða Smárason á HM en hann sýndi í æfingaleikjum fyrir mótið að hann hefur ansi margt fram að færa. Leikmaðurinn er yfirvegaður og ætlar að nýta sín tækifæri vel.




Fleiri fréttir

Sjá meira


×