Heilsa

Skolaðu skaufann

sigga dögg skrifar
Vísir/Getty
Í nýlegu viðtali í Íslandi í dag benti húðlæknirinn Baldur Tumi á að menn sæki sér oft aðstoðar til læknis vegna roða og kláða á typpinu.

Menn hafa þá gjarnan sjálfgreint sig með aðstoð internetsins og telja sig vera með sveppasýkingu.

Það virðist vera sjaldnast raunin heldur er málið það að typpið er ofþvegið.

Svona hugar þú að hreinlæti og heilsu typpisins

1. Skolaðu hann með vatni í sturtu, alls enga sápu!

2. Dragðu aftur forhúðina þegar skolar hann (á alls ekki við ung börn)

3. Gott er að skola hann eftir samfarir ef ekki var notaður smokkur

4. Berðu á hann feitt krem eins og vaselín eða olíu eins og kókosolíu

5. Vertu í nærfatnaði úr náttúrulegum efnum sem þrengja ekki of að kynfærunum

Þú skalt leita til læknis ef að...

- Útferð kemur úr typpinu

- Kláði og bólga lagast ekki við að draga úr notkun sápu og daglegrar skolunar (jafnvel prófa að nota smokk í smá tíma)

- Bólur líkjast vörtum 

- Vætlar úr sárum á typpinu

- Lykt verður mikil og súr

- Þvag verður dökkt og lyktarmikið

- Sársauki við samfarir og/eða sáðlát og/eða þvaglát


Tengdar fréttir

Smokkar í stærðum?

Ef smokkur getur teygst sem nemur hálfum handlegg, af hverju er hann þá fáanlegur í stærðum?

Bogið typpi

Það er eðlilegt að vera með bogið typpi en getur boginn verið of mikill, jafnvel hættulegur?

Umskorið typpi

Umskurður typpa er ekki algengur hér á landi þó hann sé það víðar. Hvað felst í því að umskera typpi og hefur það áhrif á kynlífið?

Hugsar þú vel um typpið þitt?

Það er að mörgu að huga í umhirðu limsins og hér gefur sérfræðingur ráð um hvernig sé best að hugsa sem best um litla vininn

Risvandamál

Hér er fjallað um vandamál við stinningu typpis, ekki erfðileika við að vakna á morgnanna.

Pungsviti

Flestir sem eru með pung kannast við að þar verður svitamyndun eins og víðar á líkamanum en þessi svitamyndun getur einnig skapað ólykt, er til svitalyktaeyðir fyrir punginn?

Getur typpið minnkað?

Margir pæla í typpastærð en getur typpið minnkað eða jafnvel horfið?

Kynfærafnykur

Það er tabú að tala um lykt á kynfærum og gjarnan grínast að píkan ilmi eins og fiskur en hvað er eðlilegt þegar kemur að kynfæralykt?

Saga tveggja typpis manns

Bandaríkjamaður fæddist með tvö starfhæf typpi og nú hefur hann ritað ævisögu sína.






Fleiri fréttir

Sjá meira


×