Skoðun

Skoðanir, álit eða lög?

Valdimar Guðjónsson skrifar
Hefðbundinn júlí. Blíða. Lognmolla. Gúrka. Þá er aðeins eitt í stöðunni hjá Samkeppniseftirliti. Sleppa djúpsprengjunum. Hamast í MS. Kemst örugglega vel í fréttirnar nú að loknu EM. Allir raðast inn í réttri röð.

1. Forstjóri Samkeppniseftirlitsins. Sekt MS hækkuð. Líkurnar á að hann verði ekki enn á ný afturreka hjá áfrýjunarnefnd samkeppnismála, á að giska fimm prósent.

2. Óli í Mjólku dúkkar upp. Ekki að þakka fyrir lánið á mjólkurbílnum. (Já, MS lánaði honum mjólkurbíl að sækja mjólk. Voru ekki verri við hann en svo. )

3. Að sjálfsögðu háskólakennarinn óhittni (Icesave, evru-draumalandið) Þórólfur Matthíasson með grein.

Það er skringileg nálgun RÚV og 365 kringum úrskurði Samkeppniseftirlitsins. Farið er með „álitin“ frá þessu svokallaða eftirliti líkt og lokadóma Hæstaréttar og að nokkur hundraða blaðsíðna langlokurnar, séu meitlaðar í stein á Síneafjalli.

Vissulega frétt, en ein af fyrstu spurningum sæmilega hugsandi fjölmiðlunga væri hvað væri nú breytt? Hvað sé öðruvísi frá því þegar sömu niðurstöður Páls Gunnars Pálssonar í máli gegn MS voru gerðar afturreka fyrir stuttu og sektarálagning endurgreidd að fullu með vöxtum. Það er langt gengið þegar stofnanir ríkisins telja sig æðri gildandi lögum. Sem sagt dæmi mörg hundruð milljóna sektir vegna eigin skoðana (ríkisstofnunarinnar) en fráleitt samkvæmt gildandi lögum. Þannig var í raun niðurstaðan síðast.

Síðan er hin hliðin auðvitað sú að hverjum eru eigin skoðanir frjálsar. Líka um lög landsins. Það má. En þá blasir líka við að fyrrgreindur forstöðumaður er á röngum stað. Hann á betur heima þar sem lögin eru sett. Hugsanlega er sá vinnustaður að gjalda fyrir hrikalega lágt skor á ánægjuvoginni. Alþingi fær ekki inn fólkið með stóru skoðanirnar vegna allra leiðindanna. Menn eins og forstjórann.

Hafi eitthvað breyst (sem ekki hefur komið fram) er það slæmt og MS þarf að vanda sig betur. Ekki skal gert lítið úr því hér. Sé ekki svo telst hér tilefnislaus blekkingarleikur.

Líkt og ótal margt í fjölbreyttum iðnaði sem Íslendingar bjástra við nýtur MS og íslenskur mjólkuriðnaður aðdáunar bæði sérfróðra í mjólkurgeiranum og neytenda erlendis. Undrast margir breitt vöruúrval og almenn gæði á ekki stærra markaðssvæði. Slíkt fæst einungis með góðu hráefni og hæfu starfsfólki. Verð til neytenda er fyllilega sambærilegt við nágrannalöndin hér í Norður-Evrópu og víðar.

Kannanir Eurostat viskubanka ESB, staðfesta það.

Greinin birtist fyrst í Fréttablaðinu 20. júlí




Skoðun

Skoðun

Saman gegn ríkisofbeldi

Vilhjálmur Yngvi Hjálmarsson,Örlygur Steinar Arnaldsson,Sigurhjörtur Pálmason,Simon Valentin Hirt,Kristbjörg Arna E. Þorvaldsdóttir,Ari Logn,Margrét Rut Eddudóttir skrifar

Sjá meira


×