Lífið

Skoðaði nektarmyndir í flugi

Lilja Katrín Gunnarsdóttir skrifar
Kanye West.
Kanye West. vísir/getty
Rapparinn Kanye West var ekki vinsæll á þriðjudagsmorgun þegar hann var of seinn í flug og lét alla aðra farþega bíða eftir sér. Flugið var á leið frá París í Frakklandi til Helsinki í Finnlandi.

Frá þessu segir í frétt Page Six og er jafnframt tekið fram að Kanye hafi hunsað alla aðra farþega vélarinnar þegar hann kom loksins um borð.

Þegar flugvélin var komin í loftið byrjaði Kanye að vinna í fartölvunni sinni en samkvæmt frétt Page Six skoðaði hann nektarmyndir af konu með sítt, dökkt hár. Ekki er ljóst hvort myndirnar voru af eiginkonu hans, raunveruleikastjörnunni Kim Kardashian.






Fleiri fréttir

Sjá meira


×