Innlent

Skoða tvíhliða samning við Breta óháð afstöðu annarra þjóða

Þorbjörn Þórðarson skrifar
Lilja Alfreðsdóttir utanríkisráðherra segir vel koma til greina að íslensk stjórnvöld geri tvíhliða fríverslunarsamning við Bretland til að verja hagsmuni sína þegar Bretar hætta í ESB óháð því hvað stjórnvöld í Noregi og Liechtenstein gera. Ríkisstjórnin samþykkti í morgun tillögu utanríkisráðherra um sérstaka ráðherranefnd um Brexit.

Meirihluti Breta studdi útgöngu Bretlands úr Evrópusambandinu í þjóðaratkvæðagreiðslu um Brexit hinn 23. júní síðastliðinn. Íslendingar hafa mikla hagsmuni af traustu viðskiptasambandi við Breta enda kaupa þjóðirnar mikið af vöru og þjónustu af hvor annarri. Ríkisstjórnin ákvað í morgun að tillögu Lilju Alfreðsdóttur utanríkisráðherra að skipa sérstaka ráðherranefnd um Brexit. Nefndin mun hafa yfirumsjón með vinnu stjórnvalda hér á Íslandi vegna útgöngu Breta úr ESB.

Samhliða verður sérstök Brexit-eining sett á laggirnar í utanríkisráðuneytinu sem mun vinna þvert á ráðuneytið. Hlutverk hennar er að tryggja nauðsynlega samræmingu innan stjórnsýslunnar, upplýsingagjöf til Alþingis og góða samvinnu við hagsmunaaðila. Gunnar Snorri Gunnarsson, sendiherra, mun stýra einingunni.

Lilja Alfreðsdóttir utanríkisráðherra segir að unnið sé eftir þremur sviðsmyndum. „Í fyrsta lagi erum við að skoða víðtækan viðskiptasamning við Breta. Í öðru lagi erum við að skoða að EFTA-ríkin myndu sameiginlega gera samning við Breta. Í þriðja lagi erum við að skoða þegar Bretar gera útgöngusamning við Evrópusambandið hvort EES-ríkin myndu ganga inn í þann samning,“ segir Lilja.

Fyrsta sviðsmyndin sem Lilja nefndi er tvíhliða samningur sem Ísland og Bretland myndu gera. Það er ekki útilokað að það þjóni hagsmunum Íslands að gera slíkan samning óháð afstöðu stjórnvalda í Noregi og Liechtenstein, hinna EFTA-ríkjanna sem eiga aðild að EES-samningnum. 

„Mín afstaða er sú að við eigum ekki að útiloka neitt á þessum tímapunkti. Við erum að fara í umfangsmikla greiningarvinnu sem miðar að því að tryggja íslenska hagsmuni og skipan okkar samskipta við Breta. Á þessum tímapunkti er algjörlega ómögulegt að útiloka eitt eða neitt.“


Tengdar fréttir




Fleiri fréttir

Sjá meira


×