Innlent

Skoða þurfi Wintris málið í samhengi við árangur Sigmundar

Þorbjörn Þórðarson skrifar
Stjórnarþingmaður segir að skoða verði þögn forsætisráðherra um félagið Wintris í samhengi við þá staðreynd að hann barðist fyrir hagsmunum almennings gegn slitabúunum, ekki hagsmunum konu sinnar. Vantrauststillaga er talin styrkja forsætisráðherra og það er ólíklegt að það þjóni hagsmunum stjórnarandstöðunnar að leggja hana fram.

Margir hafa klórað sér í höfðinu yfir því að forsætisráðherra hafi þagað um félagið Wintris Inc. öll þessi ár en félagið er í eigu eiginkonu hans, á jafnvirði 1,2 milljarða króna og lýsti kröfum í slitabú föllnu bankanna.

Það hefði sennilega verið mjög óþægilegt fyrir forsætisráðherra á fyrri stigum málsins að upplýsa um félagið því þá hefði tilvist auðæfa eiginkonu hans komist í kastljósið. Konan hans höfðaði mál gegn föður sínum, fyrrum eiganda Toyota umboðsins, til að fá fyrirframgreiddan arf en fólk höfðar ekki mál gegn foreldrum sínum á degi hverjum.

Það hefði líka verið óþægilegt fyrir forsætisráðherra að fara hart gegn kröfuhöfum, sem hann gerði alla tíð, ef það hefði legið fyrir að hagsmunir konu hans hefðu með einhverjum hætti blandast inn í þá vinnu. Vera kann að það hefði truflað vinnuna líkt og forsætisráðherrahjónin segja raunar sjálf í samantekt á heimasíðu Sigmundar. En þar segir meðal annars: „Það hefði verið vægast sagt varasamt og orkað mjög tvímælis siðferðilega ef Sigmundur hefði farið að gera þeim sérstaklega grein fyrir því að eiginkona sín ætti inni pening hjá föllnu bönkunum. Það hefði mátt túlka sem skilaboð um að það ætti að hafa þessar eignir í huga eða verja þær að einhverju leyti í viðureigninni við kröfuhafana. Sigmundur vildi ekki færa vogunarsjóðunum vopn í hendur með því að barma sér yfir tapi eiginkonunnar. Þess í stað fékk hann í verkið þá sem höfðu verið harðastir í baráttunni árin á undan, fólkið sem skildi vandann best og hafði reynt að útskýra hann fyrir fyrri stjórnvöldum, fjölmiðlum og almenningi.“ 

Stjórnmálamenn alltaf að taka ákvarðanir um eigin hagsmuni

Brynjar Níelsson þingmaður Sjálfstæðisflokksins segir að skoða verði málið í samhengi við þá staðreynd að forsætisráðherra barðist alltaf fyrir hagsmunum almennings á Íslandi í viðureign við slitabú föllnu bankanna en ekki hagsmunum konu sinnar. 

„Nú er það svo að stjórnmálamenn eru alltaf að taka ákvarðanir sem varða þeirra hagsmuni. Menn geru það við setningu neyðarlaganna og þegar settur var á auðlegðarskattur og lífeyrisréttindi voru undanskilin. Það voru allt ívilnandi ákvarðanir. Þessi ákvörðun um skattlagningu og stöðugleikaframlag var allt mjög íþyngjandi fyrir kröfuhafa slitabúa föllnu bankanna. Öfugt við aðrar ákvarðanir sem teknar hafa verið. Þetta voru íþyngjandi ákvarðanir fyrir kröfuhafanna og líka eiginkonu forsætisráðherra,“ segir Brynjar. Hann segist meta pólitíska stöðu Sigmundar ágæta. 

Vonast eftir vantrauststillögu

Forsætisráðherra sagði í viðtali á Bylgjunni á páskadag að hann vonaðist til þess að stjórnarandstaðan myndi ekki guggna á því að leggja fram vantrauststillögu því þá gæfist tækifæri til þess að ræða árangur ríkisstjórnarinnar. Forsætisráðherra nýtur stuðnings í báðum stjórnarflokkunum og talið er að flestir ef ekki allir stjórnarþingmenn muni verja hann vantrausti. Stjórnarandstöðuþingmenn sem fréttastofa hefur rætt við segja að það væri jafnvel ekki mjög klókt af stjórnarandstöðunni að leggja fram vantraust á þessum tímapunkti. Það styrki stöðu Sigmundar og hreinsi málið pólitískt. Skynsamlegra væri að ræða málið áfram undir liðnum „störf þingsins“ eða með óundirbúnum fyrirspurnum. Einn stjórnarandstöðuþingmaður sagði að skynsamlegt væri að bíða eftir upplýsingum um eignir ráðherra í skattaskjólum en félagið Reykjavík Media hyggst birta upplýsingar um þær á næstu dögum í samstarfi við Kastljós RÚV. Greint hefur verið frá því að nöfn þriggja ráðherra séu á listanum. 

Væri gáfulegt af stjórnarandstöðunni að leggja fram vantraust á Sigmund núna? „Ég myndi ekki gera það ef ég væri í stjórnarandstöðu. Ég held að það sé ekki mjög gáfulegt, nei. Og ég á ekki von á því að þau geri það,“ segir Brynjar Níelsson. 


Tengdar fréttir

Prófsteinn á lærdóma hrunsins

Sérfræðingur hjá Siðfræðistofnun telur að það hafi ekki verið heiðarlegt hjá forsætisráðherra að halda tilvist félagsins Wintris á Jómfrúreyjum leyndri fyrir þjóðinni. Hann telur málið prófstein á lærdóma hrunsins og rannsóknarskýrslu Alþingis.

Þingmenn ræða vantraust á Sigmund

Formaður Bjartrar framtíðar segir koma til greina að leggja fram vantrauststillögu á forsætisráðherra. Ástæðan er upplýsingar sem birtust um fjármál eiginkonu ráðherrans í síðustu viku.




Fleiri fréttir

Sjá meira


×