Bílar

Skoda Superb og Kodiaq fá rafmagnsmótora

Finnur Thorlacius skrifar
Skoda VisionS tilraunabíllinn.
Skoda VisionS tilraunabíllinn.
Bæði flaggskipið Superb og nýi jeppinn Kodiaq frá Skoda munu fá rafmagnsmótora til aðstoðar brunavélum frá og með árinu 2019. Auk þess ætlar Skoda að hefja sölu á hreinræktuðum rafmagnsbíl á sama ári. Skoda virðist vera komið vel á veg með þróun þessa fyrsta rafmagnsbíls síns og ætlar að sýna hann á bílasýningunni í Shanghai í Kína seinni hluta apríl.

Þessi rafmagnsbíll verður á MEB-undirvagni Volkswagen bílafjölskyldunnar, en hann mun þjóna undir flesta rafmagnsbíla þeirra bílamerkja sem tilheyra Volkswagen. Þróunarstjóri Skoda, Christian Stube lét hafa á eftir sér að nýr rafmagnsbíll Skoda verði hlaðinn tækninýjungum og muni spila myndarlega á tilfinningar fólks. Því er von á mjög spennandi bíl í útliti og líklega verður þar ekki á ferðinni jepplingur, líkt og VisionS tilraunabíll Skoda, heldur fremur fólksbíll.

Þó að þessar fréttir séu örlítið í framtíðinni hjá Skoda er margt spennadi að gerast hjá Skoda í ár. Skoda er þegar búið á árinu að kynna uppfærðar gerðir Rapid og Citigo, sem og Octavia RS 245 og Sportline og Scout gerðir af nýja Kodiaq jeppanum. Seinna á árinu ætlar Skoda svo að kynna nýja kynslóð af Yeti bílnum og líklega verður hann fyrst sýndur á bílasýningunni í Frankfurt í september.




Fleiri fréttir

Sjá meira


×