Viðskipti innlent

Skoða rekstur flugrútu til Akureyrar

Samúel Karl Ólason skrifar
„Með þessu móti gætu farþegar verið komnir til Akureyrar fyrir miðnætti sama dag og þeir lenda.“
„Með þessu móti gætu farþegar verið komnir til Akureyrar fyrir miðnætti sama dag og þeir lenda.“ Vísir/Pjetur
Ferðaþjónustufyrirtækið Gray Line hefur skoðað möguleikann á því að bjóða beinar rútuferðir á milli Keflavíkurflugvallar og Akureyrar. Það hefur verið í skoðun undanfarna mánuði. Fyrirtækið telur að þannig mætti að hluta til mæta þörfum farþega í millilandaflugi sem eiga erindi norður eða að norðan.

Þetta kemur fram í tilkynningu frá Gray Line.

„Hugmyndin er að ferðirnar verði í tengslum við komur og brottfarir á Keflavíkurflugvelli síðdegis. Við teljum að við þurfum að byrja með a.m.k tvær ferðir í viku, síðdegis til Akureyrar og að norðan að morgni dags,“ segir Þórir Garðarsson, framkvæmdastjóri sölu- og markaðssviðs Gray Line.

„Með þessu móti gætu farþegar verið komnir til Akureyrar fyrir miðnætti sama dag og þeir lenda. Á sama hátt gætu þeir náð síðdegisflugi frá Keflavíkurflugvelli sama dag og þeir leggja af stað frá Akureyri.“

Í tilkynningunni segir að Gray Line hafi kynnt þessi áform fyrir aðilum í ferðaþjónustu og fengið ágætar undirtektir. Slíkar ferðir gætu, að mati Gray Line, stuðlað að lengri dvöl ferðamanna fyrir noraðn og verið ákjósanlegur valkostur fyrir þá sem eiga aðeins erindi þangað og ætla ekki að stoppa á höfuðborgarsvæðinu.

„Beint flug til Akureyrar hefur verið reynt og ekki gengið upp. Vafalítið mun koma að því að slíkar ferðir geti orðið sjálfbær kostur. En meðan verið er að skapa þann markað teljum við farsælast að byggja á þeirri staðreynd að mestallt millilandaflug fer um Keflavíkurflugvöll. Sá flugvöllur þjónar öllum áfangastöðum erlendis en viðbúið er að beint flug til Akureyrar tengist aðeins einum áfangastað erlendis.

Við teljum því skynsamlegast í stöðunni að megináherslan í markaðssetningu Norðurlands beinist áfram að flugfarþegum sem fara um Keflavikurflugvöll, enda fara þar um 9 af hverjum 10 ferðamönnum sem hingað koma,“ segir Þórir.






Fleiri fréttir

Sjá meira


×