Innlent

Skoða hvort hækka þurfi viðbúnaðarstig

Kolbeinn Tumi Daðason skrifar
Víðir Reynisson, deildarstjóri almannavarna ríkislögreglustjóra.
Víðir Reynisson, deildarstjóri almannavarna ríkislögreglustjóra. Vísir/Valli
Víðir Reynisson, formaður almannvarnardeildar ríkislögreglustjóra, segir í samtali við fréttastofu að fundað hafi verið með vísindamönnum í morgun. Víðir var á línunni í hádegisfréttum Bylgjunnar en þá var fundi nýlokið. 500 skjálftar hafa mælst á svæðinu við Bárðarbungu frá því á miðnætti. Ekkert lát er á skjálftavirkni en fjöldi þeirra er vel á fjórða þúsund undanfarna daga.

„Þessi atburður er orðinn mjög langur og mikið af skjálftum,“ segir Víðir. Töluverð hreyfing sé á landi. Hans menn séu á tánum og hafi af því talsverðar áhyggjur af það geti gosið. Þó verði að hafa í huga að vel geti farið að ekkert gos verði.

„Við verðum að setja viðbúnað á það stig að við séum eins tilbúin og möuglegt er til að takast á við þetta,“ segir Víðir. Nú verði metið hvort tilefni sé til þess að hækka viðbúnaðarstig. Sú ákvörðun verði tekin í samráði við ríkislögreglustjóra.

„Það er verið að skoða alla möguleika,“ segir Víðir. Vísindamenn hafi skoðað flóðahættuna og þar séu okkar færustu sérfræðingar til staðar. Hann segir að virknin mun líklega ekki valda hamfarahlaupi af allra stærstu gerð. Hlaup geti þó valdið vandræðum og skemmt vegi í námunda við jökulinn.




Tengdar fréttir

Virknin gengur áfram í bylgjum

Skjálftavirkni í kringum Bárðarbungu er enn mikil en þetta kemur fram í tilkynningu frá Veðurstofu Íslands.

Almannavarnardeild fundar og fer yfir ný gögn

"Það verður farið yfir öll ný gögn sem hafa borist undanfarinn sólarhring,“ segir Víðir Reynisson, deildarstjóri Almannavarnardeildar Ríkislögreglustjóra, í samtali við fréttastofu.

Ábyrgðin hefur verið færð yfir á flugrekendur

Ábyrgðin á því að fljúga þar sem hætta getur verið á eldfjallaösku í lofti, verður færð frá flugmálayfirvöldum yfir á flugrekendurna sjálfa samkvæmt nýrri reglugerð Alþjóða flugmálastofnunarinnar, sem tekur gildi í nóvember.

Enn mikil skjálftavirkni undir Bárðarbungu

Heldur dró úr skjálftavirkni undir Bárðarbungu upp úr miðnætti en svo jókst hún aftur um fjögur leytið í nótt og varð brátt álíka og í fyrrinótt, þegar vel á þriðja hundrað skjálftar mældust frá miðnætti til klukkan sex í gærmorgun.




Fleiri fréttir

Sjá meira


×