Skjóta 7.000 máva ár hvert 31. ágúst 2005 00:01 "
Við skjótum mest á urðunarstaðnum í Álfsnesi en þangað sækja mávarnir í leit að æti en við skjótum líka í eyjunum úti á sundunum," segir Guðmundur Friðriksson, skrifstofustjóri neyslu- og úrgangsmála hjá Reykjavíkurborg. Hann segir að alls séu skotnir um sjö þúsund mávar á hverju ári en það dugi ekki til því kvartanir berist í síauknum mæli inn á borð borgaryfirvalda. Á fundi umhverfisráðs Reykjavíkur á dögunum var lagt fram svar umhverfissviðs borgarinnar við fyrirspurn fulltrúa Sjálfstæðisflokksins þar sem fram kom að mávum hefði fjölgað verulega og til greina kæmi að grípa til aðgerða vegna þess. "Veiðifélög í borginni hafa til að mynda óskað eftir aðstoð þar sem mávurinn étur seiði sem ganga niður árnar en almennt séð þá er það þannig að við sjáum meira af mávum núna en áður. Aðgerðirnar virðast ekki duga til. Við brýnum fyrir fólki að ganga snyrtilega um borgina því mávarnir leita í rusl á götum borgarinnar," segir Guðmundur. Arnþór Þorvaldsson mávaskytta segir að skotveiðibann innan borgarmarkanna sé meginástæðan fyrir því að mávum hafi farið fjölgandi. "Áður en Kjalarnes rann inn í Reykjavík sem eitt sameinað sveitarfélag, gat ég skotið máva í uppeldisstöðvum mávsins í Kollafirði, Víðinesi og Naustanesi. Þar er mikið varp en eftir að sveitarfélögin sameinuðust þá er bannað að skjóta. Þess vegna eru mávar sofandi á hverjum ljósastaur í borginni snemma á morgnana og éta allt fæði sem færa á öndunum á Tjörninni," segir Arnþór. Hann segist sjálfur hafa skotið um fjögur þúsund máva í hverjum mánuði en fái það ekki lengur og telur það meginástæðuna fyrir ástandinu eins og það er í dag. "Síðustu sex árin hefur mávum fjölgað, einmitt vegna þessa," segir Arnþór.
Fréttir Innlent Mest lesið „Fórnarlambið látið borga brúsann“ Innlent „Það vegast þarna á mjög erfið sjónarmið“ Innlent Skuldbundu sig í fjögur ár en farin eftir átján mánuði Innlent Safnað fyrir foreldra Bergs Ottós Innlent Bólga eftir bílbeltið leiddi til sýknu Innlent Aðalsteinn hleypur í skarðið Innlent Vaxtaplanið sé tímaskekkja Innlent Rúmlega átján þúsund skiluðu ekki framtali Innlent Skoða hvernig brotthvarfi Bandaríkjanna úr hafrannsóknum verður mætt Innlent Trúir ekki öðru en að nýir herrar fjarlægi „níðstöngina“ Innlent Fleiri fréttir Landris og kvikusöfnun heldur áfram Trúir ekki öðru en að nýir herrar fjarlægi „níðstöngina“ Enginn þurfi að óttast að vera skilinn frá maka sínum Safnað fyrir foreldra Bergs Ottós Áfrýjar ekki dómi fyrir brot á Múlaborg Gervigreindin aukið hraða netsvika gríðarlega Góður gangur í fundarhöldum um þinglok Enn tekist á um þingstörfin og gervigreindin eykur hættuna á netglæpum Jóna Árný endurráðin bæjarstjóri „Fórnarlambið látið borga brúsann“ Skoða hvernig brotthvarfi Bandaríkjanna úr hafrannsóknum verður mætt Rúmlega átján þúsund skiluðu ekki framtali „Það vegast þarna á mjög erfið sjónarmið“ Rafvarnarvopn kom við sögu þar sem tilkynnandi um brot var handtekinn Vaxtaplanið sé tímaskekkja Bólga eftir bílbeltið leiddi til sýknu Skuldbundu sig í fjögur ár en farin eftir átján mánuði „Það þarf nú ansi mikið að ganga upp“ Þurfi frekar að gera meira fyrir konurnar heldur en að skrímslavæða þær Aðalsteinn hleypur í skarðið „Börn eiga aldrei að borga fyrir gjörðir foreldra sinna“ Vilhjálmur sagði af sér þingmennsku Andmæla fundarboði aðalfundar Sósíalista Konukot og börn í brottfararstöð í brennidepli í kvöldfréttum Séra Guðni Már kveður Ísland Magga Friðriks leitar til almennings eftir stuðningi „Svaraðu spurningunni“ Sérsveitaraðgerð á Eskifirði Tjón upp á hundrað milljónir og eldsupptök ráðgáta Nær tvöföldun umsókna um meistaranám Sjá meira