Innlent

Skjálfti upp á 5,1 stig í nótt

Atli Ísleifsson skrifar
Gosvirkni í Holuhrauni virðist vera svipuð og síðustu daga.
Gosvirkni í Holuhrauni virðist vera svipuð og síðustu daga. Vísir/Auðunn Níelsson
Um þrjátíu jarðskjálftar hafa mælst í norðvestanverðum Vatnajökli frá miðnætti.

Í tilkynningu frá Veðurstofunni segir að um fimmtán þeirra hafi verið við norðurenda berggangsins og mældist sá stærsti 5,1 stig skömmu eftir klukkan eitt í nótt, 8,4 kílómetra aust-norðaustur af Bárðarbungu.

Minni skjálftar hafa einnig mælst við Tungnafellsjökil, Öskju og í kringum Herðubreið.

Gosvirkni í Holuhrauni virðist vera svipuð og síðustu daga.




Fleiri fréttir

Sjá meira


×